Heitur Brauðréttur
- 20 Aug, 2026
Heitur brauðréttur er að mínu mati alveg ómissandi í barnaafmælum og í raun öllum kökuboðum. Það er því alltaf svoleiðis á boðstólnum hjá mér! Þessi uppskrift kemur upprunalega frá mömmu minni sem hefur gert þennan rétt í öllum afmælum síðan ég var barn, og ég held þeirri dásamlegu hefð að sjálfsögðu áfram. Þetta er án efa minn allra uppáhalds heiti réttur!
Hráefni
- 1 dós aspas (safinn notaður í sósuna)
- 500 ml matreiðslurjómi
- 1 askja sveppasmurostur
- 3 tsk nautakraftur
- 1 pakki skinka
- 1/2 stykki samlokubrauð (fransbrauð er langbest!)
- 200g rifinn ostur
Aðferð
- Setjið aspassafann úr dósinni, matreiðslurjóma, sveppasmurost og nautakraft saman í pott.
- Hitið yfir vægum hita og hrærið vel þar til osturinn er alveg bráðnaður og sósan er orðin heit.
- Skerið samlokubrauðið í litla bita og dreifið jafnt í botninn á eldföstu móti.
- Skerið skinkuna í litla bita og dreifið yfir brauðið ásamt aspasnum úr dósinni.
- Hellið heitu sveppasósunni ríflega yfir allt saman svo brauðið dragi hana vel í sig.
- Toppið réttinn með vel af rifnum osti.
- Bakið í ofni við 180°C í um 15 mínútur, eða þar til osturinn er alveg bráðnaður og kominn með fallegan gylltan lit.
- Berið réttinn fram rjúkandi heitan beint úr ofninum á veisluborðið og njótið með góðum gestum!