Showing Posts From

Bakstur

Gamla Góða Hjónabandssælan

Gamla Góða Hjónabandssælan

Hráefni375g mjúkt smjör 400g hveiti 170g sykur 135g púðursykur 3 tsk lyftiduft 400g haframjöl 5 kúfaðar msk rabarbarasulta (eða eftir smekk) Smá salt (til að strá yfir áður en bakað er)AðferðBlandið mjúku smjöri, hveiti, sykri og púðursykri vel saman í hrærivélarskál þar til allt hefur samlagast. Bætið lyftidufti og haframjöli út í skálina og hrærið rétt á meðan deigið kemur saman (gætið þess að hræra ekki of mikið). Klæðið bökunarplötu eða stórt mót með bökunarpappír. Setjið um það bil 2/3 af deiginu í mótið og þrýstið því vel og jafnt niður. Dreifið rabarbarasultunni ríflega yfir deigbotninn. Myljið afganginn af deiginu (1/3) yfir sultuna þannig að hún hyljist vel. Stráið smá salti yfir allt saman og bakið í ofni við 170°C í 35–40 mínútur, eða þar til kakan er orðin falleg og gullinbakin. Látið hjónabandssæluna kólna örlítið og skerið í hæfilega ferninga. Berið fram rjúkandi ferska með ískaldri mjólk! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Djúsí og Dúnmjúkir Pizzasnúðar

Djúsí og Dúnmjúkir Pizzasnúðar

Hráefni360g volg mjólk (passaðu að hún sé yfirlvolg, ekki of heit né of köld) 4 tsk ger 2 tsk sykur 2 egg 720g brauðhveiti (eða venjulegt hveiti) 1 tsk salt 115g mjúkt smjör (skorið í litla bita)FyllingPizzasósa Pizzakrydd Skinka (skorin í bita eða strimla) Nóg af rifnum ostiAðferðHellið volgu mjólkinni í hrærivélarskál. Bætið geri og sykri saman við og blandið vel saman. Bætið eggjunum út í og hrærið vel. Því næst fara þurrefnin (brauðhveiti og salt) út í og látið vélina vinna þar til deigið hefur tekið sig saman. Bætið mjúku smjörinu smám saman út í, í litlum skömmtum, og leyfið því að blandast vel saman við deigið á milli. Hnoðið deigið í hrærivélinni í 5–10 mínútur, þar til það er mjúkt, gljáandi og teygjanlegt. Hyljið skálina með klút og leyfið deiginu að hefast í um 1 klukkustund, eða þar til það hefur tvöfaldast að stærð. Setjið deigið á hveitistráð borð og fletjið það út í stóran ferning með kökukefli. (Ath: Venjulega er gott að skipta deiginu í tvennt fyrir minni snúða, en ef þig langar í extra stóra og djúsí snúða geturðu flatt allt deigið út í einu eins og gert er í myndbandinu!) Smyrjið ríflega af pizzasósu yfir allt deigið og stráið pizzakryddi, skinku og vel af rifnum osti yfir. Rúllið deiginu þétt upp í eina langa lengju og skerið í hæfilega stóra snúða með hníf. Raðið snúðunum á bökunarpappírsklædda ofnplötu. Hyljið plötuna með klút og leyfið snúðunum að hefast aftur í um 20 mínútur. Bakið í ofni við 170°C (blástur) í 20–30 mínútur, eða þar til þeir eru fallega gylltir og osturinn vel bráðnaður. (Bökunartími fer eftir stærð snúðanna). Látið snúðana kólna örlítið og berið fram rjúkandi ferska. Njótið! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Saltkaramellu- Rjómaosta Gúmmelaðikökur

Saltkaramellu- Rjómaosta Gúmmelaðikökur

Heimalöguð Saltkaramella Gott er að byrja á karamellunni svo hún fái góðan tíma til að kólna áður en hún fer á kökurnar.(Sniðugt trikk: Ef þú ert í tímahraki má líka bræða tilbúnar karamellur í potti og þynna með smá rjóma eða mjólk!) Hráefni150g sykur 75g smjör 90ml rjómi (volgur) 1/2 tsk saltAðferðSetjið sykurinn á pönnu á miðlungs hita. Fylgist vel með á meðan hann bráðnar og verður gullinn (passið að brenna hann ekki). Bætið smjörinu út í og blandið vel saman. Bætið að lokum volgum rjómanum út á og hrærið vel saman. Endið á að setja saltið út í og hræra vel. Færið karamelluna yfir í skál sem þolir hita og leyfið henni að kólna vel.Kökurnar Hráefni340g smjör (við stofuhita) 200g sykur 200g púðursykur 4 egg 2 tsk vanilludropar 500g hveiti 2 tsk lyftiduft 2 tsk maíssterkja (cornstarch) 1/2 tsk saltAðferðHitið ofninn í 175°C (blástur) eða 190°C (undir/yfirhita) og klæðið bökunarplötu með bökunarpappír. Þeytið saman smjör, sykur og púðursykur í stórri skál þar til blandan er mjúk og slétt. Bætið eggjum (einu og einu í einu) og vanilludropum út í og hrærið þar til allt er vel blandað og kremað. Blandið þurrhráefnunum varlega saman við smjörblönduna. Hrærið bara þar til allt hefur samlagast – gætið þess að hræra ekki of mikið. Mótið kúlur úr deiginu með skeið eða ísskeið og raðið á plötuna. Skiljið eftir um 5 cm millirými því kökurnar fletjast út. Bakið í 10–12 mínútur, eða þar til kantarnir verða ljósgylltir en miðjan er enn vel mjúk. Látið kökurnar standa á bökunarplottunni í nokkrar mínútur áður en þær eru færðar á grind til að kólna alveg.Rjómaostaglassúr Hráefni225g (8 oz) rjómaostur (við stofuhita) 4 msk smjör (við stofuhita) 1 tsk vanilludropar 240g flórsykurAðferðÞeytið rjómaost og smjör saman í 2–3 mínútur þar til blandan er létt og loftkennd. Bætið vanilludropum og flórsykri út í og hrærið vel saman í sléttan glassúr.SamsetningSetjið rjómaostaglassúrinn og kældu karamelluna í hvorn sinn sprautupokann (eða smyrjið með skeið/spaða). Sprautið rjómaostaglassúrnum í jöfnum hringjum yfir kældar kökurnar. Toppið með því að sprauta saltkaramellunni í fallegu mynstri yfir glassúrinn.Berið fram og njótið ríflega! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Epla-Karamellu Skyrkaka

Epla-Karamellu Skyrkaka

Hráefni Eplakaramella3 græn epli (skæld og skorin í litla bita) 2 msk smjör 60g púðursykur 30g sykur 1 tsk kanill 1 msk rjómi Þykking: 1 msk vatn + 1 tsk maíssterkja (pískað saman)Skyrblanda500ml rjómi 500g karamelluskyr (t.d. frá KEA)Botninn1 pakki LU Bastogne kex með kanil (mulið niður)Aðferð 1. EplakaramellanSkerið eplin í litla og jafna bita. Bræðið smjörið á pönnu og steikið eplin upp úr því í stutta stund. Bætið púðursykri, sykri, kanil og rjóma út á pönnuna og látið malla á vægum hita þar til eplin fara að mýkjast. Hellið maíssterkjublöndunni (vatn + maíssterkja) út á pönnuna í lokin og hrærið vel saman þar til karamellan þykknar. Takið pönnuna af hitanum og látið eplakaramelluna kólna alveg.2. SkyrblandanÞeytið rjómann í skál þar til hann er léttur og myndar mjúka toppar. Bætið karamelluskyrinu út í rjómann og blandið því varlega saman við með sleikju þar til kremið er slétt og silkimjúkt.3. Samsetning í glösLag 1 (Botn): Skeiðið um 1–2 tsk af mölðu kanilkexi í botninn á hverju glasi. Lag 2 (Skyr): Sprautið (eða skeiðið) lagi af skyrblöndunni yfir kexið. Lag 3 (Eplakaramella): Setjið góða skeið af kældu eplakaramellunni yfir skyrkremið. Lag 4 (Skyr): Toppið með öðru lagi af skyrblöndu á toppinn. (Valfrjálst: Ef þú átt aukakex er dásamlegt að strá smá kexmelsningu yfir á alveg síðustu stundu!)Framreiðsla Berið fram kært og njótið með góðum gestum! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Kúmenbrauð

Kúmenbrauð

Hráefni390ml volgt vatn 1 tsk sykur 1,5 tsk ger 1 msk olía 500g brauðhveiti 2 tsk salt 2 tsk kúmenfræAðferð 1. Deigið blandaðBlandið saman volgu vatni, sykri, geri, olíu, brauðhveiti og salti í stórri skál (öll hráefni nema kúmenið). Hrærið vel saman með sleikju þar til öll þurrefni hafa samlagast. Hyljið skálina með klút og látið hefast í 15 mínútur.2. Stretch & Fold skrefinStráið helmingnum af kúmenfræjunum (1 tsk) yfir deigið. Gerið stretch & fold (togið í deigið upp úr skálinni og brettið það yfir sig sjálft, snúið skálinni og endurtakið um 10 sinnum). Hyljið skálina og látið hefast aftur í 15 mínútur. (Þið getið sé nákvæma aðferð í myndbandinu neðst í uppskriftinni) Stráið afganginum af kúmenfræjunum (1 tsk) yfir deigið og gerið stretch & fold aftur á sama hátt. Hyljið skálina og látið deigið hefast í 90 mínútur.3. Mótun & BökunHellið deiginu á hveitistráð borð. Brettið deigið saman og rúllið/dragið það á borðinu til að búa til spennu á yfirborð deigkúlunnar. Setjið deigkúluna á bökunarpappír, hyljið með skálinni og látið hefast í 20 mínútur. Á meðan deigið hefast í seinna skiptið, hitið pott með loki (t.d. steypujárnspott) í ofninum við 240°C. Skerið kross eða fallegt mynstur í toppinn á brauðinu með beössum hníf. Takið heita pottinn úr ofninum, lyftið brauðinu á bökunarpappírnum varlega ofan í pottinn og setjið lokið á. Bakið í ofninum við 240°C í 45 mínútur.Framreiðsla Takið brauðið úr pottinum og látið það kólna á grind. Skerið í sneiðar, smyrjið vel af smjöri og álegg og njótið! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Bounty Súkkulaðikaka

Bounty Súkkulaðikaka

Hráefni Kókosblandan200g kókosmjöl 1 dós niðursoðin sæt mjólk (Condensed milk) 1 eggSúkkulaðikakan1 bolli hveiti 1 bolli sykur 3/4 bolli kakó 1 tsk matarsódi 1/2 tsk salt 1/2 bolli olía 1/2 bolli súrmjólk 1/2 bolli sjóðandi heitt vatn 1 tsk vanilludropar 1 eggSúkkulaði Ganache (Kremið)200g suðusúkkulaði (smátt saxað) 100g rjómi 1 msk smjörAðferðSetjið kókosmjöl, niðursoðna mjólk og egg saman í skál. Blandið öllu vel saman með sleikju þar til komin er þétt og fín kókosblanda. Leggið til hliðar. Setjið hveiti, sykur, kakó, matarsóda og salt saman í skál og pískið saman. Bætið olíu, súrmjólk, sjóðandi heitu vatni, vanilludropum og eggi út í skálina. Hrærið öllu vel saman þar til deigið er slétt og kekkjalaust. Klæðið hringlaga kökuform (ca. 25 cm) með bökunarpappír. Trýstið kókosblöndunni vel og jafnt í botninn á forminu. Hellið súkkulaðideiginu varlega yfir kókoslagið. Bakið í ofni við 170°C í 40–45 mínútur. (Fylgist vel með í lokin, kakan er tilbúin þegar prjónn stunginn í miðjuna kemur hreinn út). Látið kökuna kólna alveg. Saxið suðusúkkulaðið smátt og setjið í skál. Hitið rjómann upp að suðu í litlum potti og hellið honum heitum yfir söxuðu súkkulaðibitana. Bætið 1 msk af smjöri út í og látið standa óhreyft í 2–3 mínútur. Hrærið svo vel í skálinni þar til kremið verður silkimjúkt og gljáandi.SamsetningHvolfið kældu kökunni á kökudisk þannig að kókosbotninn snúi upp (eða hafið hana eins og þér finnst best!). Hellið súkkulaði ganache kreminu yfir kökuna og smyrjið vel úr því yfir toppinn og hliðarnar. Endið á því að strá smá kókosmjöli yfir til skrauts.Skerið í ríflegar sneiðar og njótið! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Mjúkir Kanilsnúðar

Mjúkir Kanilsnúðar

Hráefni360g volg mjólk 4 tsk ger 100g sykur 2 egg 720g hveiti 1 tsk salt 115g mjúkt smjörFylling120g mjúkt smjör 200g púðursykur 2 msk kanillFyrir bökunca. 1 dl rjómiAðferðBlandið saman volgri mjólk, geri og sykri í hrærivélarskál. Bætið eggjum, hveiti og salti saman við og látið deigið koma saman í hrærivélinni. Bætið mjúku smjörinu við í nokkrum skömtum (smátt og smátt) á meðan vélin er í gangi og hrærið vel á milli. Látið hrærivélina hnoða deigið vel í 8–10 mínútur þar til það er slétt og teygjanlegt. Hnoðið deigið aðeins í höndunum, mótið kúlu og setjið í skál. Hyljið skálina og látið deigið hefast í 60 mínútur (eða þar til það hefur tvöfaldast að stærð). Hrærið saman mjúku smjöri, púðursykri og kanil í skál þar til komið er smurhæft krem. Stráið smá hveiti á borðið og fletjið deigið út í stóran ferning (passið að hafa það ekki of þunnt). Smyrjið kanilfyllingunni jafnt yfir allt deigið. Rúllið deiginu pétt upp í eina stóra lengju og skerið í um það bil 2 cm þykka bita. Raðið snúðunum í smurt eldfast mót. Hyljið mótið og látið snúðana hefast aftur í 30 mínútur. Hellið um það bil 1 dl af rjóma jafnt yfir snúðana og á milli þeirra í eldfasta mótinu rétt áður en þeir fara í ofninn. Bakið í ofni við 175°C í 20–25 mínútur, eða þar til snúðarnir eru orðnir fallegir og gylltir á toppnum. Látið snúðana standa í nokkrar mínútur eftir að þeir koma úr ofninum svo þeir drugi í sig alla dásamlegu karamellusósuna í botninum. Berið fram og njótið! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Hollari Beyglur úr Grískri Jógúrt

Hollari Beyglur úr Grískri Jógúrt

Hráefni4,5 dl grísk jógúrt 4,5 dl hveiti (t.d. Körnax hvítu eða bláu pokarnir) 2 tsk lyftiduft 1 tsk salt 1 egg (slegið saman til að pensla) Valmöguleiki 1: ca. 6–10 jalapeño bita (smátt saxaðir) + 1 dl rifinn cheddarostur Valmöguleiki 2: Everything Bagel kryddblanda (t.d. frá McCormick)AðferðSetjið gríska jógúrt, hveiti, lyftiduft og salt í stóra skál. Hrærið öllu lauslega saman með sleikju og hellið svo deiginu á hveitistráð borð. Hnoðið deigið mjúklega í höndunum í nokkrar mínútur þar til það kemur saman í slétta og fína kúlu.Ef þú vilt gera beiglur með jalapeño og cheddar: Stráið söxuðum jalapeño og hluta af cheddarostinum yfir deigið og hnoðið varlega saman.Skiptið deiginu í 8 hluta. Mótið hvern hluta í kúlu og stingið fingri í gegnum miðjuna til að búa til beyglugat. Togið og snúið deiginu léttilega til að stækka gatið. Raðið beyglunum á ofnplötu klædda bökunarpappír. Penslið allar beyglurnar vel með slegnu eggi. Jalapeño-beyglurnar: Raðið auka jalapeño-sneiðum á toppinn og stráið vel af rifnum cheddarost yfir. Everything Bagel-beyglurnar: Stráið ríflega af Everything Bagel kryddi yfir. Bakið í ofni við 170°C í um það bil 20–25 mínútur, eða þar til þær eru orðnar fallega gylltar. Látið beyglurnar kólna aðeins á grind. Skerið í tvennt, smyrjið með rjómaosti eða uppáhalds álegginu þínu og njótið! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Allra besta súkkulaðikakan

Allra besta súkkulaðikakan

Ég ætla leyfa mér að fullyrða að þetta sé besta súkkulaðikakan! Ég hef notað þessa uppskrift í mörg ár og eyddi smá tíma í að fínpússa hana þar til hún varð nákvæmlega eins og ég vildi hafa hana. Hún er mjúk, rík af súkkulaðibragði og ótrúlega fjölhæf. Og eitt af því mikilvægasta: hún er rosalega einföld. Þú getur bókstaflega sett hana í ofninn á um það bil 5 mínútum – ég er ekki að ýkja! Ég nota hana í alls konar kökur, hvort sem það er einföld skúffukaka með glassúr eða fallega skreytt kaka með smjörkremi. Hún hentar í allt. Ég mæli hiklaust með að þú prófir hana. Uppskrift (ATH 1 bolli = 2.3dl)2 bollar hveiti 2 bollar sykur 3/4 bollar kakó 2tsk matarsódi 1tsk salt 1 bolli súrmjólk 1 bolli olía 1 bolli heitt vatn úr krananum 2tsk vanilludroparÉg byrja á því að blanda þurrefnunum saman, bæti svo restinni af hráefnunum og hrærum velSmyr svo skúffukökuform með olíu og helli deginu í formiðÉg baka svo kökuna á 175 gráðum í 25-30 min View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Snickers kaka

Snickers kaka

Súkkulaðibotnar (ATH: 1 bolli = 2,3 dl)2 bollar hveiti 2 bollar sykur 3/4 bolli kakó 2 tsk matarsódi 1 tsk salt 1 bolli súrmjólk 1 bolli olía 1 bolli heitt vatn úr krananum 2 tsk vanilludroparBlandið öllum þurrefnunum vel saman í skál og blandið saman. Bætið restinni af hráefnunum út í og hrærið vel saman þar til deigið er slétt. Skiptið deiginu jafnt í tvö form (ca. 2 x 25 cm) sem hafa verið klædd bökunarpappír. Bakið við 175°C í 25-30 mínútur. Látið botnana kólna alveg.Heimalöguð Hnetukaramella300g sykur 150g smjör (við stofuhita, skorið í bita) 180ml rjómi 1/2 tsk salt 200g salthneturHitið rjómann upp að suðu í litlum potti og takið af hitanum (mikilvægt svo hann sé heitur þegar hann fer út í sykurinn). Setjið helminginn af sykrinum á pönnu á meðalháan hita og bræðið hann niður. Bætið svo hinum helmingnum við og leyfið öllu að bráðna í gullna karamellu. Takið pönnuna af hitanum og hrærið smjörinu saman við þar til það er bráðnað. Hellið heita rjómanum varlega út í (gætið ykkur, það sýður mikið upp) og blandið vel saman. Setjið saltið út í lokin. Takið 1/3 af karamellunni frá og setjið í sér skál (fyrir toppinn). Restinni (2/3) blandið þið saman við salthneturnar í annarri skál og leyfið báðum blöndum að kólna.Súkkulaðikrem225g smjör 150g suðusúkkulaði 150g rjómasúkkulaði 120g flórsykur 25g kakó 1/2 tsk saltSetjið öll hráefnin saman í pott og bræðið yfir meðalhita þar til allt hefur runnið saman í slétt og gljáandi krem. Hellið kreminu í skál (eða eldfast mót til að flýta fyrir) og geymið í ísskáp í 2-3 klukkustundir svo það stífni og verði smurhæft.SamsetningSetjið neðri botninn á kökudisk. Smyrjið þunnu lagi af súkkulaðikreminu ofan á. Setjið hluta af súkkulaðikreminu í sprautupoka. Sprautið hring með fram jaðrinum á botninum til að búa til „vegg“ sem heldur hnetukaramellunni inni. Hellið salthnetu-karamellublöndunni á mitt kremið og jafnið út. Setjið seinni kökubotninn ofan á. Smyrjið restinni af súkkulaðikreminu jafnt utan um alla kökuna og ofan á hana. Setjið karamelluna (sem var tekin frá) í sprautupoka. Sprautið henni í hringi ofan á kökuna, sléttið aðeins úr henni með spaða og búið til fallegt snúningsmynstur í miðjunni með endanum á spaðanum á meðan þú snýrð diskinum. Skerið Snickers í litla bita og raðið þeim fallega meðfram kanti kökunnar.Berið fram og njótið með góðum kaffibolla eða ískaldri mjólk! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Hættulega einföld kanilkaka

Hættulega einföld kanilkaka

Byrjaðu á því að græja fyllinguna Hráefni150g púðursykur 2 tsk kanill 120g bráðið smjörSetjið púðursykur og kanil saman í skál. Hellið bráðnu smjöri út í og hrærið vel saman. Leggið til hliðar.Kökudeigið360g hveiti 200g sykur 4 tsk lyftiduft 300ml mjólk 1 tsk vanilludropar 2 egg 110g bráðið smjörSetjið hveiti, sykur og lyftiduft saman í skál og hrærið lauslega saman með píski. Hellið mjólk og vanilludropum út í skálina, brjótið eggin saman við og byrjið að píska. Bætið bráðnu smjöri út í deigið á meðan þið pískið og hrærið þar til deigið er kekkjalaust og slétt. Setjið bökunarpappír í skúffukökuform (eða viðeigandi bökunarform). Hellið deiginu í formið og sléttið vel úr því með sleikju. Dreifið kanil- og púðursykursblöndunni jafnt yfir deigið með skeið. Notið svo hníf til að gera hringi eða mynstur í deigið þannig að sósan blandist örlítið saman við kökuna án þess þó að renna alveg inn í hana. Bakið í ofni við 160°C. Ef þú ert með frekar þunnt skúffukökuform (eins og í myndbandinu) tekur þetta um 20 mínútur, en gott er að fylgjast vel með kökunni þar sem bökunartími getur verið mismunandi eftir formum.Látið kökuna kólna lítið eitt, skerið í hæfilega bita og njótið! Hún er dásamleg ein og sér eða með ískaldri mjólk eða góðum kaffibolla.