Einfaldar & ljúffengar uppskriftir!

Ofnbökuð Tómatsúpa

Ofnbökuð Tómatsúpa

Hráefni12 stórir tómatar 1 bakki kirsuberjatómatar 1 rauð paprika 2 rauðlaukar 3 heilir hvítlaukar 3 msk ólífuolía 1 tsk paprikuduft 1 tsk óreganó ½ tsk chili flögur 1 tsk salt (og smá aukalega í lokin ef þarf) ½ tsk pipar 10–15 fersk basillauf 1 msk tómatpúrra 500 ml vatn 1 grænmetisteningur 200 ml rjómi Smá sykur (ef þarf til að vega á móti biturleika)AðferðSkerðu stóru tómatana, paprikuna og rauðlaukana í stóra bita og settu í stórt eldfast mót ásamt kirsuberjatómötunum. Skerðu toppinn af hvítlaukshonunum 3 (þannig að geirarnir sjáist) og komdu þeim fyrir í mótinu með grænmetinu. Hellið ólífuolíu yfir og stráið paprikudufti, óreganó, chili flögum, salti og pipar yfir allt saman. Blandið vel saman og bakið í ofni við 200°C í um það bil 45 mínútur. Taktu eldfasta mótið úr ofninum og settu hvítlaukinn til hliðar. Hellið öllu ristaða grænmetinu ásamt öllum dásamlega safanum úr mótinu yfir í stóran pott. Kreistu hvítlaukana úr hýðinu beint út í pottinn. Bættu ferskum basillaufum, tómatpúrru, vatni og grænmetisteningi út í. Notið töfrasprota til að mauka allt vel saman þar til súpan er silkimjúk. Hellið rjómanum út í súpuna og hrærið vel saman yfir vægum hita. Smakkaðu súpuna til – bættu við smá aukasalti eða allt að 1 msk af sykri ef þér finnst þurfa að vega á móti sýrunni eða biturleikanum úr tómötunum. View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Steiktar Tortillur með Kjúkling

Steiktar Tortillur með Kjúkling

Hráefni8 kjúklingalæri2 paprikur 1 rauðlaukurOlíaUppáhalds kjúklingakryddið þitt - Ég nota Best á KjúklinginnTortillakökur (litlar eða meðalstórar)Rifinn ostur Olía til steikingarHvítlaukssósa (til að sprauta yfir í lokin)Kirsuberjatómatar GúrkaOlívolíaSítrónusafiSalt og piparAðferðSkerið paprikur, rauðlauk og kjúklingalæri í strimla/ræmur.Setjið allt saman í eldfast mót, hellið smá olíu yfir og kryggið vel með góðu kjúklingakryddi.Blandið öllu vel saman og bakið í ofni við 200°C í um 20 mínútur.Á meðan kjúklingurinn er í ofninum, skerið tómata og gúrku í litla bita og setjið í skál.Bætið við smá ólífuolíu, sítrónusafa, salti og pipar og hrærið vel saman.Hitið smá olíu á pönnu við meðalhita og leggið tortillaköku á pönnuna.Stráið vel af rifnum osti yfir alla kökuna.Setjið hæfilegan skammt af ofnbakaða kjúklinga- og grænmetisblöndunni á annan helminginn af tortillunni.Brettið hinn helminginn yfir svo úr verði hálfmáni og steikið á báðum hliðum þar til tortillan er orðin stökk og gyllt og osturinn alveg bráðnaður.Opnið tortilluna og skellið fersku salti inn í og toppið með hvítlaukssósu.Berið fram rjúkandi heitt og njótið! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Pestó Brauð

Pestó Brauð

Hráefni390 ml volgt vatn 1 tsk sykur 1,5 tsk ger 1 msk olía 500 g brauðhveiti 2 tsk salt 1 krukka pestó (t.d. rautt chili pestó eða hefðbundið grænt pestó)Aðferð 1. Deigið blandaðBlandið saman volgu vatni, sykri, geri, olíu, brauðhveiti og salti í stórri skál (öll hráefni nema pestóið). Hrærið vel saman með sleikju þar til engin þurr hveitiögn er eftir.Hyljið skálina og látið hefast í 15 mínútur.Stráið 2 msk af pestói yfir deigið. Gerið stretch & fold (togið í deigið upp úr skálinni og brettið það yfir sig sjálft, snúið skálinni og endurtakið um 10 sinnum). Hyljið skálina og látið hefast aftur í 15 mínútur.Gerið stretch & fold aftur á sama hátt (án þess að bæta við pestói í þetta skiptið).Hyljið skálina og látið deigið hefast í 90 mínútur.Stráið smá hveiti á borðið og hellið deiginu úr skálinni.Þrýstu deiginu varlega út í ferning.Smyrjið meira pestói á miðjuna, brettið 1/3 af deiginu yfir, smyrjið aftur pestói og brettið hinn helminginn yfir (eins og að bretta bréf).Smyrjið pesto á toppinn og rúllið deiginu þétt upp í kúlu til að búa til spennu á yfirborð deigsins.Setjið deigkúluna á bökunarpappír, hyljið með skálinni og látið hefast í 20 mínútur.Á meðan brauðið hefast, hitið pott með loki í ofninum við 240°C.Skerið lauslega nokkrar rendur í toppinn á brauðinu með hvössum hníf. Takið heita pottinn úr ofninum, lyftið brauðinu á bökunarpappírnum varlega ofan í pottinn og setjið lokið á.Bakið í ofninum við 240°C í 45 mínútur.Látið brauðið kólna aðeins á grind áður en það er skorið. Skerið í sneiðar og njótið! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Kjúklinga Núðlur

Kjúklinga Núðlur

Hráefni3 kjúklingabringur 1 pakki (250g) núðlur 1 laukur 2 hvítlauksgeirar 1 tsk paprikuduft 1 tsk hvítlauksduft 1/2 tsk chiliflögur (má sleppa) 1 tsk salt 1/2 tsk pipar 2 tsk matarsódi (mýkir kjúklinginn!) 2 msk maíssterkjaSósan1 dl soyasósa 2 tsk hvítlauksduft 1/2 tsk chiliflögur (má sleppa) 2 msk hunang 1 dl vatn 2 msk sítrónusafi 2 tsk maíssterkjaAðferð 1. Kjúklingurinn kryddaðurSkerið kjúklingabringurnar í litla bita og setjið í skál. Bætið við paprikudufti, hvítlauksdufti, chiliflögum, salti, pipar, matarsóda og maíssterkju. Blandið öllu vel saman svo kryddið og sterkjan hjúpi kjúklinginn alveg. Pískaðu saman í skál: soyasósu, hvítlauksduft, chiliflögur, hunang, vatn, sítrónusafa og maíssterkju þar til allt leysist vel upp. Leggið til hliðar. Hitið olíu á pönnu og steikið kjúklinginn þar til hann er eldaður í gegn og kominn með fallega húð. Takið kjúklinginn af pönnunni og setjið á disk til hliðar. Mýkið laukinn og saxaða hvítlaukinn á sömu pönnu í dálítinn tíma. Hellið sósunni út á pönnuna og látið hana malla á meðalhita á meðan þið sjóðið núðlurnar. Sjóðið núðlurnar í potti samkvæmt leiðbeiningum á pakka og hellið svo vatninu af. Bætið núðlunum og kjúklingnum út á pönnuna og blandið saman við sósuna. View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Próteinríkt Pastasalat

Próteinríkt Pastasalat

Hráefni1 pakki prótínpasta 300g frosinn kjúklingur (foreldaður) 1/2 gúrka 1 pakki kirsuberjatómatar 1/2 rauðlaukur 2 avókadó 1/2 bakki rifinn MexíkóosturSiracha-Jógúrtsósa3 kúfaðar msk grísk jógúrt 3 msk Sriracha sósa (eða eftir smekk) Safi úr 1/2 sítrónu 1 tsk hvítlauksduft 1 tsk þurkuð steinselja Salt og pipar (eftir smekk)AðferðSjóðið pastað í söltuðu vatni samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Hitið foreldaða kjúklinginn í airfryer eða í ofni þar til hann er orðinn heitur. Hrærið saman í skál: gríska jógúrt, Sriracha sósu, sítrónusafa, hvítlauksduft, steinselju, salt og pipar þar til sósan er mjúk og vel blönduð. Skerið niður gúrku, kirsuberjatómata, rauðlauk og avókadó. Setjið soðna pastað, hitaða kjúklinginn, skorna grænmetið og rifna Mexíkóostinn í stóra skál. Hellið sósunni yfir og blandið öllu saman Berið salatið fram strax eða geymið í ísskáp. Þetta salat er líka frábært daginn eftir! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Marens Terta með Kókosbollu Rjóma

Marens Terta með Kókosbollu Rjóma

Hráefni5 eggjahvítur 5 dl púðursykur 500 ml rjómi (+1dl til að skreyta) 100g suðusúkkulaði (skorið í litla bita) 1 pakki kókosbollur Fersk ber til að skreyta Rifið suðusúkkulaðiAðferðByrjum á að stifþeyta eggjahvitur og púðursykur. Þetta tekur 10-15 mín en við vitum að marensinn er tilbúinn þegar við getum hvolft skálinni og hrist hana til án þess að marensinn haggist. Skiptum blöndunni í tvennt og dreifum úr á bökunarpappír. (Ég teikna hring á pappírinn svo botnarnir séu jafnt stórir) Bökum á 120 gráðum í 60min (blástur). Þá slekk ég á ofninum og leyfir marensinum að kólna inní honum. Nú getum við fyllinguna. Byrjum á að þeyta rjómann (500ml) og skerum súkkulaðið í bita og blöndum saman við. Að lokum setjum við kókosbollurnar saman við og blöndum þeim vel við. Mér finnst gott að merja kókosbollurnar svolítið á meðan ég blanda þeim saman við rjómann. Setjum svo rjómann á milli botnanna og geymum inní ísskáp í amk 12 klukkutíma. Ef þið viljið má skreyta kökuna áður en hún er borin fram. Ég þeytti 1dl af rjóma og setti ofaná kökuna. Raðaði svo berjum ofaná rjómann og endaði á rífa smá suðusúkkulaði yfir allt saman. Svo er bara að bera fram og njóta! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Heitur Brauðréttur

Heitur Brauðréttur

Hráefni1 dós aspas (safinn notaður í sósuna) 500 ml matreiðslurjómi 1 askja sveppasmurostur 3 tsk nautakraftur 1 pakki skinka 1/2 stykki samlokubrauð (fransbrauð er langbest!) 200g rifinn osturAðferðSetjið aspassafann úr dósinni, matreiðslurjóma, sveppasmurost og nautakraft saman í pott. Hitið yfir vægum hita og hrærið vel þar til osturinn er alveg bráðnaður og sósan er orðin heit. Skerið samlokubrauðið í litla bita og dreifið jafnt í botninn á eldföstu móti. Skerið skinkuna í litla bita og dreifið yfir brauðið ásamt aspasnum úr dósinni. Hellið heitu sveppasósunni ríflega yfir allt saman svo brauðið dragi hana vel í sig. Toppið réttinn með vel af rifnum osti. Bakið í ofni við 180°C í um 15 mínútur, eða þar til osturinn er alveg bráðnaður og kominn með fallegan gylltan lit. Berið réttinn fram rjúkandi heitan beint úr ofninum á veisluborðið og njótið með góðum gestum! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Hakk og Spagetti

Hakk og Spagetti

Hráefni300gr spagettí 500gr nautahakk Salt og pipar Hvítlaukskrydd Laukkrydd Paprikukrydd 1 dós/krukka pastasósa (t.d. Tomato, Garlic & Onion frá Essential Everyday - eða bara það sem ykkur finnst best) Ferskur parmesanostur (rifinn yfir í lokin)AðferðHitið vatn í potti upp á suðu og saltið það vel. Hitið smá olíu á pönnu og steikið nautahakkið. Kryddið með salti, pipar, hvítlaukskryddi, laukkryddi og paprikukryddi. Hellið allri krukkunni af pastasósu út á pönnuna hjá hakkinu. Hrærið vel saman og látið sósuna malla á vægum hita. Þegar vatnið fer að sjóða, setjið spagettíð út í og sjóðið samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Smakkið hakksósuna til á meðan spagettíð er að eldast og bætið við meira af kryddi eða salti ef þörf er á. Setjið soðið spagettí á disk, skellið ausu af hakksósunni ofan á og rífið parmesan yfir. Svo er bara að njóta! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Hunangs- og Sítrónukjúklingur með Fersku Gúrkusalati

Hunangs- og Sítrónukjúklingur með Fersku Gúrkusalati

Hráefni4–6 kjúklingalæri Salt og pipar Maíssterkja (cornstarch, til að velta kjúklingnum upp úr) Olía til steikingarFerskt Gúrkusalat1 gúrka (skorin í pappanúnar sneiðar, t.d. með ostaskera eða hníf) 1/4 rauðlaukur (skorinn í þunnar sneiðar/strimla) 1 msk ólífuolía 1 tsk hvítvínsedik Salt og pipar Smá chili flögurHunangs- og Sítrónusósa2 msk smjör 2 hvítlauksgeirar (pressaðir) 1 dl sojasósa (ég var með ljósa sojasósu) 3 msk hunang 1/2 tsk chili flögur 1 tsk rifinn sítrónubörkur Safi úr 1/2 sítrónuAðferðKryddið kjúklingalærin með salti og pipar. Veltið kjúklingnum vel upp úr maíssterkju þannig að hún hylji bitana alveg. Hitið olíu á pönnu og steikið kjúklinginn á báðum hliðum þar til hann er kominn með stökka og gullna húð og er gegnumeldaður. Takið kjúklinginn af pönnunni og setjið á disk til hliðar. Á sömu pönnu, bræðið smjörið og steikið pressaðan hvítlauk í stutta stund. Bætið sojasósu, hunangi, chili flögum, rifnum sítrónuberki og sítrónusafa út á pönnuna. Látið sósuna malla í 2–3 mínútur þar til hún þykknar og verður gljáandi. etjið steikta kjúklinginn aftur út á pönnuna í sósuna, snúið bitunum við og ristið aðeins til að sósan hylji kjúklinginn alveg. Skerið gúrkuna og rauðlaukinn í þunnar sneiðar og setjið í skál/dós með loki. Bætið ólífuolíu, hvítvínsediki, salti, pipar og chili flögum út í. Setjið lok á skálina og hristið vel saman svo allt marinérist.+ Skerið kjúklinginn í sneiðar. Setjið soðin hrísgrjón í skál, raðið kjúklingnum ofan á og skellið ríflegum skammti af ferska gúrkusalatinu við hliðina. Auka sósu er hellt yfir kjúklinginn og endað á að strá graslauki og sesame fræjum yfir allt saman. Gjörið svo vel! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Kjúklingur og Pasta – Kvöldmatur á 20 Mínútum!

Kjúklingur og Pasta – Kvöldmatur á 20 Mínútum!

Hráefni4 kjúklingabringur (skornar í tvennt) Hvítlaukskryddblanda (t.d. "Hvítlaukskryddblanda Bezt á flest") 600 ml vatn 500 ml tómat passata 2 kjúklingateningar 1 pakki pasta (t.d. Rummo Maxima próteinpasta eða venjulegt pasta) Salt og pipar (eftir smekk)AðferðSkerið kjúklingabringurnar í tvennt og kryggið vel öðrum megin með hvítlaukskryddblöndunni. Hitið smá olíu á stórri pönnu, setjið kjúklinginn á pönnuna og kryggið hina hliðina líka. Steikið í stutta stund á hvorri hlið til að fá fallega steikingarhúð (ekki þarf að elda kjúklinginn alveg í gegn strax). Blandið saman í skál vatni, passata og kjúklingateningum. Hellið ósoðnu pastanu beint á pönnuna í kringum og yfir kjúklinginn. Hellið vökvablöndunni yfir allt á pönnunni þannig að pastað hyljist vel. Kryddið með smá salti og pipar. Skellið loki á pönnuna og látið suðuna koma upp. Látið allt malla á vægum/meðalhita undir loki í 12–15 mínútur, eða þar til pastað er orðið mjúkt. Berið fram rjúkandi heitt og njótið! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Epla-Kanilkaka

Epla-Kanilkaka

Kökudeigið360g hveiti 200g sykur 4 tsk lyftiduft 300ml mjólk 1 tsk vanilludropar 2 egg 110g bráðið smjörEplablandan3 Pink Lady epli (afhýdd og skorin í litla bita) 1 tsk kanill 2 msk sykurKanil- og púðursykurssósa (Á toppinn)150g púðursykur 2 tsk kanill 100g bráðið smjörGlassúr2 dl flórsykur 1 tsk vanilludropar 4 tsk mjólkAðferðSetjið hveiti, sykur og lyftiduft saman í skál og pískið saman.Bætið mjólk, vanilludropum og eggjum út í skálina og pískið vel. Bætið bráðnu smjöri út í í lokin og hrærið þar til deigið er slétt.Skerið eplin í litla terninga, setjið í sér skál ásamt 1 tsk af kanil og 2 msk af sykri. Hristið eða blandið vel saman svo eplin hjúpist vel.Hellið eplablöndunni út í kökudeigið og vendið varlega saman með sleikju.Hellið deiginu í 25 cm hringlaga bökunarform sem hefur verið klædd bökunarpappír og sléttið úr því.Blandið saman púðursykri, 2 tsk af kanil og 100g af bráðnu smjöri í skál þar til komin er fljótandi, ríkuleg kanilsósa.Dreifið sósunni jafnt yfir kökudeigið í forminu.Notið hníf til að dýfa í deigið og gera hringlaga mynstur (marmaramynstur) svo kanilsósan blandist örlítið saman við efsta lag deigsins.Bakið í ofni við 170°C í um það bil 35–45 mínútur. Látið kökuna kólna aðeins.Pískaðu saman flórsykri, vanilludropum og mjólk í skál þar til kominn er sléttur glassúr.Dreifðu glassúrnum yfir kökuna.Skerið í ríflegar sneiðar og njótið með kaffibolla, þeyttum rjóma eða vanilluís. Gjörið svo vel! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Stökkar Kalkúna Ceasar Taco

Stökkar Kalkúna Ceasar Taco

HráefniTortilla-kökur - Ég var með 7 miðlungsstórar Kalkúnahakk 700gr Kornflex Kínakál c.a hálfur haus Rifinn Parmesan c.a 1dl Caesar dressing 1 Egg 1tsk Salt 1tsk Laukkrydd tsk Hvítlaukskrydd 1/2tsk Pipar 1tsk PaprikukryddAðferðSetjum kalkúnahakkið í skál og bætum kryddunum útí og blöndum vel saman. Smyrjum hakkinu á tortillakökurnar og dreifum vel úr því. Pískrum saman eggið og penslum hverja köku með eggi. Næst dýfum við kökunum, hakkhliðin niður, í kronflex sem við erum búin að milja létt niður. Steikjum tortillurnar á pönnu á meðalhita í 3-4 min á hvorri hlið eða þar til hakkið er eldað í gegn. Skerum kálið niður og blöndum við það c.a 1dl af rifnum parmesan osti og 1dl af Ceasar sósu. Toppum tortillurnar með kálblöndunni, gott að setja extra parmesan og sósu ofaná ef vill. View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)