Mjúkir Kanilsnúðar

Mjúkir Kanilsnúðar

Mér finnst þetta vera einir bestu kanilsnúðar í heimi! Þeir eru ótrúlega mjúkir, djúsí og með geggjaðri kanilfyllingu. ATH! Ekki stökkva yfir skrefið þar sem rjómanum er hellt yfir snúðana rétt áður en þeir fara í ofninn – hann karamelliserast í botninum og gerir þá extra djúsí!

Hráefni

  • 360g volg mjólk
  • 4 tsk ger
  • 100g sykur
  • 2 egg
  • 720g hveiti
  • 1 tsk salt
  • 115g mjúkt smjör

Fylling

  • 120g mjúkt smjör
  • 200g púðursykur
  • 2 msk kanill

Fyrir bökun

  • ca. 1 dl rjómi

Aðferð

  1. Blandið saman volgri mjólk, geri og sykri í hrærivélarskál.
  2. Bætið eggjum, hveiti og salti saman við og látið deigið koma saman í hrærivélinni.
  3. Bætið mjúku smjörinu við í nokkrum skömtum (smátt og smátt) á meðan vélin er í gangi og hrærið vel á milli.
  4. Látið hrærivélina hnoða deigið vel í 8–10 mínútur þar til það er slétt og teygjanlegt.
  5. Hnoðið deigið aðeins í höndunum, mótið kúlu og setjið í skál. Hyljið skálina og látið deigið hefast í 60 mínútur (eða þar til það hefur tvöfaldast að stærð).
  6. Hrærið saman mjúku smjöri, púðursykri og kanil í skál þar til komið er smurhæft krem.
  7. Stráið smá hveiti á borðið og fletjið deigið út í stóran ferning (passið að hafa það ekki of þunnt).
  8. Smyrjið kanilfyllingunni jafnt yfir allt deigið.
  9. Rúllið deiginu pétt upp í eina stóra lengju og skerið í um það bil 2 cm þykka bita.
  10. Raðið snúðunum í smurt eldfast mót.
  11. Hyljið mótið og látið snúðana hefast aftur í 30 mínútur.
  12. Hellið um það bil 1 dl af rjóma jafnt yfir snúðana og á milli þeirra í eldfasta mótinu rétt áður en þeir fara í ofninn.
  13. Bakið í ofni við 175°C í 20–25 mínútur, eða þar til snúðarnir eru orðnir fallegir og gylltir á toppnum.
  14. Látið snúðana standa í nokkrar mínútur eftir að þeir koma úr ofninum svo þeir drugi í sig alla dásamlegu karamellusósuna í botninum. Berið fram og njótið!