Dásamlega Mjúkir Kleinuhringir

Dásamlega Mjúkir Kleinuhringir

Það er að mínu mati fátt betra en nýsteiktir kleinuhringir – og þegar þeir eru svona dúnmjúkir eins og þessir, þá er ekki hægt að stoppa! Þetta er mín allra uppáhalds kleinuhringjauppskrift og ég mæli eindregið með því að þú prófir hana.

Hráefni

  • 480g volg mjólk
  • 14g þurrger
  • 100g sykur
  • 4 egg
  • 2 tsk vanilludropar
  • 2 tsk salt
  • 800g hveiti (mælt er með brauðhveiti)
  • 170g mjúkt smjör

Steiking

  • 1 líter olía

Gljái

  • 500g flórsykur
  • 1 tsk vanilludropar
  • 5–8 msk mjólk (löguð til eftir smekk)

Aðferð

  1. Blandaðu saman volgri mjólk, þurrgeri og sykri í hrærivélarskál. Láttu standa í 5–10 mínútur þar til blandan fer að freiða.
  2. Bættu eggjum, vanilludropum, salti og hveiti út í skálina.
  3. Hrærðu deigið með deigkróknum þar til allt hefur samlagast. Bættu svo mjúka smjörinu við í litlum skömtum og hrærðu vel á milli.
  4. Hnoðaðu deigið á meðalhraða í hrærivélinni í 8–10 mínútur eða þar til það er orðið silkimjúkt, teygjanlegt og farið að losna frá hliðunum á skálinni.
  5. Smyrðu stóra skál léttilega með olíu, færðu deigið yfir í hana og hylðu með klút.
  6. Láttu deigið hefast í skjóli í um 80 mínútur (eða þar til það hefur tvöfaldast að stærð).
  7. Stráðu vel af hveiti á borðið og helltu deiginu úr skálinni.
  8. Þrýstu létt á deigið og teygðu úr því með höndunum (passaðu að hafa það ekki of þunnt).
  9. Skerðu út kleinuhringi með kleinuhringjaskera (eða mótum/glasi).
  10. Færðu hringina varlega yfir á plötu klædda bökunarpappír og láttu þá bíða á meðan olían er hituð.
  11. Hitaðu Isio4 olíuna í potti eða djúpri pönnu upp í 170°C (gott er að nota mæli til að fylgjast vel með hitanum).
  12. Stektu kleinuhringina í 40–50 sekúndur á hvorri hlið þar til þeir eru fallegir og gylltir.
  13. Færðu þá yfir á bökunargrind og láttu þá kólna aðeins.
  14. Pískaðu saman flórsykri, vanilludropum og 5 msk af mjólk í skál. Bættu við meiri mjólk (matskeið í einu) þar til gljáinn er frekar þunnur en hylur hringina vel.
  15. Dýfðu hverjum kleinuhring vel í gljáann og leggðu á bakka eða grind til að gljáinn setjist.
  16. Berið fram nýgerða og njótið hvers einasta bita! Þessir eru ómótstæðilegir með kaffibolla eða ískaldri mjólk.