Stökkar Kalkúna Ceasar Taco

Stökkar Kalkúna Ceasar Taco

Mig langaði til að prufa þessar stökku Ceasar Taco eftir að hafa séð hvert videoið á fætur öðru á samfélagsmiðlum. Hér fáið þið mína útgáfu af þessum vinsæla rétti. Þetta kom skemmtilega á óvart og ég mun klárlega gera þessar aftur og aftur!

Hráefni

  • Tortilla-kökur - Ég var með 7 miðlungsstórar
  • Kalkúnahakk 700gr
  • Kornflex
  • Kínakál c.a hálfur haus
  • Rifinn Parmesan c.a 1dl
  • Caesar dressing
  • 1 Egg
  • 1tsk Salt
  • 1tsk Laukkrydd
  • tsk Hvítlaukskrydd
  • 1/2tsk Pipar
  • 1tsk Paprikukrydd

Aðferð

  1. Setjum kalkúnahakkið í skál og bætum kryddunum útí og blöndum vel saman.
  2. Smyrjum hakkinu á tortillakökurnar og dreifum vel úr því.
  3. Pískrum saman eggið og penslum hverja köku með eggi.
  4. Næst dýfum við kökunum, hakkhliðin niður, í kronflex sem við erum búin að milja létt niður.
  5. Steikjum tortillurnar á pönnu á meðalhita í 3-4 min á hvorri hlið eða þar til hakkið er eldað í gegn.
  6. Skerum kálið niður og blöndum við það c.a 1dl af rifnum parmesan osti og 1dl af Ceasar sósu.
  7. Toppum tortillurnar með kálblöndunni, gott að setja extra parmesan og sósu ofaná ef vill.