Djúsí og Dúnmjúkir Pizzasnúðar
- 11 Jul, 2026
Það jafnast fátt við nýbakaða, heita pizzasnúða! Þessi uppskrift gefur dásamlega mjúka og teygjanlega snúða sem klikka aldrei. Perfekt í nestisboxið, í afmælið eða einfaldlega sem lúxus millimál.
Ég mæli með að nota brauðhveiti í stað hefðbundins hveitis til að gera deigið extra mjúkt!
Hráefni
- 360g volg mjólk (passaðu að hún sé yfirlvolg, ekki of heit né of köld)
- 4 tsk ger
- 2 tsk sykur
- 2 egg
- 720g brauðhveiti (eða venjulegt hveiti)
- 1 tsk salt
- 115g mjúkt smjör (skorið í litla bita)
Fylling
- Pizzasósa
- Pizzakrydd
- Skinka (skorin í bita eða strimla)
- Nóg af rifnum osti
Aðferð
- Hellið volgu mjólkinni í hrærivélarskál. Bætið geri og sykri saman við og blandið vel saman.
- Bætið eggjunum út í og hrærið vel. Því næst fara þurrefnin (brauðhveiti og salt) út í og látið vélina vinna þar til deigið hefur tekið sig saman.
- Bætið mjúku smjörinu smám saman út í, í litlum skömmtum, og leyfið því að blandast vel saman við deigið á milli.
- Hnoðið deigið í hrærivélinni í 5–10 mínútur, þar til það er mjúkt, gljáandi og teygjanlegt.
- Hyljið skálina með klút og leyfið deiginu að hefast í um 1 klukkustund, eða þar til það hefur tvöfaldast að stærð.
- Setjið deigið á hveitistráð borð og fletjið það út í stóran ferning með kökukefli. (Ath: Venjulega er gott að skipta deiginu í tvennt fyrir minni snúða, en ef þig langar í extra stóra og djúsí snúða geturðu flatt allt deigið út í einu eins og gert er í myndbandinu!)
- Smyrjið ríflega af pizzasósu yfir allt deigið og stráið pizzakryddi, skinku og vel af rifnum osti yfir.
- Rúllið deiginu þétt upp í eina langa lengju og skerið í hæfilega stóra snúða með hníf.
- Raðið snúðunum á bökunarpappírsklædda ofnplötu.
- Hyljið plötuna með klút og leyfið snúðunum að hefast aftur í um 20 mínútur.
- Bakið í ofni við 170°C (blástur) í 20–30 mínútur, eða þar til þeir eru fallega gylltir og osturinn vel bráðnaður. (Bökunartími fer eftir stærð snúðanna).
- Látið snúðana kólna örlítið og berið fram rjúkandi ferska. Njótið!