Prótein Calzone
- 10 Mar, 2026
Einfalt Calzone úr próteinríku deigi sem ég geri úr grískri jógúrt og hveti. Tilvalið sem snöggur kvöldmatur eða ef þig langar í eitthvað gott í hádegismat
Próteindeig
- 200g grísk jógúrt
- 250g hveiti
- 1 tsk lyftiduft
- 1 tsk óreganó
Fylling
Hér getur þú leikið þér með það sem þér finnst best, en í myndbandinu var notuð þessi klassíska blanda:
- Pítsasósa
- Skinka (skorin í sneiðar)
- Rifinn osgur
- Pítsakrydd
- Smá chili flögur (chili flakes)
Aðferð
- Setjið gríska jógúrt, hveiti, lyftiduft og óreganó saman í skál.
- Blandið öllu vel saman og hnoðið svo aðeins með höndunum þar til það myndar jafnt og meðfærilegt deig.
- Skiptið deiginu í tvennt.
- Fletjið hvorn hluta út með kökukefli í flata, kringlótta pítsubotna á hveitistráðu borði.
- Smyrjið pítsasósu á annan helminginn af hverjum botni.
- Raðið skinku og pepperóní ofan á sósuna.
- Stráið vel af rifnum osti yfir.
- Kryddið með pítsakryddi og smá chili flögum.
- Brjótið tóma helminginn á deiginu yfir fyllinguna. Smellið brúnunum vel saman og rullið þeim upp eða klemmið saman með fingrunum þannig að fyllingin leki örugglega ekki út í ofninum.
- Raðið kökunum í eldfast mót eða á ofnplötu.
- Bakið í ofni við 180°C í 20 mínútur þar til deigið er fallega gyllt.