Ofnbökuð Tómatsúpa
- 16 Sep, 2026
Það er fátt betra en nýlöguð, rjómalöguð tómatsúpa! Dásamlegur kvöldmatur sem yljar manni á köldum dögum!
Hráefni
- 12 stórir tómatar
- 1 bakki kirsuberjatómatar
- 1 rauð paprika
- 2 rauðlaukar
- 3 heilir hvítlaukar
- 3 msk ólífuolía
- 1 tsk paprikuduft
- 1 tsk óreganó
- ½ tsk chili flögur
- 1 tsk salt (og smá aukalega í lokin ef þarf)
- ½ tsk pipar
- 10–15 fersk basillauf
- 1 msk tómatpúrra
- 500 ml vatn
- 1 grænmetisteningur
- 200 ml rjómi
- Smá sykur (ef þarf til að vega á móti biturleika)
Aðferð
- Skerðu stóru tómatana, paprikuna og rauðlaukana í stóra bita og settu í stórt eldfast mót ásamt kirsuberjatómötunum.
- Skerðu toppinn af hvítlaukshonunum 3 (þannig að geirarnir sjáist) og komdu þeim fyrir í mótinu með grænmetinu.
- Hellið ólífuolíu yfir og stráið paprikudufti, óreganó, chili flögum, salti og pipar yfir allt saman. Blandið vel saman og bakið í ofni við 200°C í um það bil 45 mínútur.
- Taktu eldfasta mótið úr ofninum og settu hvítlaukinn til hliðar. Hellið öllu ristaða grænmetinu ásamt öllum dásamlega safanum úr mótinu yfir í stóran pott.
- Kreistu hvítlaukana úr hýðinu beint út í pottinn. Bættu ferskum basillaufum, tómatpúrru, vatni og grænmetisteningi út í.
- Notið töfrasprota til að mauka allt vel saman þar til súpan er silkimjúk.
- Hellið rjómanum út í súpuna og hrærið vel saman yfir vægum hita.
- Smakkaðu súpuna til – bættu við smá aukasalti eða allt að 1 msk af sykri ef þér finnst þurfa að vega á móti sýrunni eða biturleikanum úr tómötunum.