Allra besta súkkulaðikakan

Allra besta súkkulaðikakan

Ég ætla leyfa mér að fullyrða að þetta sé besta súkkulaðikakan! Ég hef notað þessa uppskrift í mörg ár og eyddi smá tíma í að fínpússa hana þar til hún varð nákvæmlega eins og ég vildi hafa hana. Hún er mjúk, rík af súkkulaðibragði og ótrúlega fjölhæf. Og eitt af því mikilvægasta - hún er rosalega einföld. Þú getur bókstaflega sett hana í ofninn á um það bil 5 mínútum – ég er ekki að ýkja! Ég nota hana í alls konar kökur, hvort sem það er einföld skúffukaka með glassúr eða fallega skreytt kaka með smjörkremi. Hún hentar í allt. Ég mæli hiklaust með að þú prófir hana.

Ég ætla leyfa mér að fullyrða að þetta sé besta súkkulaðikakan!

Ég hef notað þessa uppskrift í mörg ár og eyddi smá tíma í að fínpússa hana þar til hún varð nákvæmlega eins og ég vildi hafa hana. Hún er mjúk, rík af súkkulaðibragði og ótrúlega fjölhæf. Og eitt af því mikilvægasta: hún er rosalega einföld.

Þú getur bókstaflega sett hana í ofninn á um það bil 5 mínútum – ég er ekki að ýkja!

Ég nota hana í alls konar kökur, hvort sem það er einföld skúffukaka með glassúr eða fallega skreytt kaka með smjörkremi. Hún hentar í allt.

Ég mæli hiklaust með að þú prófir hana.

Uppskrift

(ATH 1 bolli = 2.3dl)

  • 2 bollar hveiti
  • 2 bollar sykur
  • 3/4 bollar kakó
  • 2tsk matarsódi
  • 1tsk salt
  • 1 bolli súrmjólk
  • 1 bolli olía
  • 1 bolli heitt vatn úr krananum
  • 2tsk vanilludropar

Ég byrja á því að blanda þurrefnunum saman, bæti svo restinni af hráefnunum og hrærum vel
Smyr svo skúffukökuform með olíu og helli deginu í formið
Ég baka svo kökuna á 175 gráðum í 25-30 min