Showing Posts From

Kökur

Marens Terta með Kókosbollu Rjóma

Marens Terta með Kókosbollu Rjóma

Hráefni5 eggjahvítur 5 dl púðursykur 500 ml rjómi (+1dl til að skreyta) 100g suðusúkkulaði (skorið í litla bita) 1 pakki kókosbollur Fersk ber til að skreyta Rifið suðusúkkulaðiAðferðByrjum á að stifþeyta eggjahvitur og púðursykur. Þetta tekur 10-15 mín en við vitum að marensinn er tilbúinn þegar við getum hvolft skálinni og hrist hana til án þess að marensinn haggist. Skiptum blöndunni í tvennt og dreifum úr á bökunarpappír. (Ég teikna hring á pappírinn svo botnarnir séu jafnt stórir) Bökum á 120 gráðum í 60min (blástur). Þá slekk ég á ofninum og leyfir marensinum að kólna inní honum. Nú getum við fyllinguna. Byrjum á að þeyta rjómann (500ml) og skerum súkkulaðið í bita og blöndum saman við. Að lokum setjum við kókosbollurnar saman við og blöndum þeim vel við. Mér finnst gott að merja kókosbollurnar svolítið á meðan ég blanda þeim saman við rjómann. Setjum svo rjómann á milli botnanna og geymum inní ísskáp í amk 12 klukkutíma. Ef þið viljið má skreyta kökuna áður en hún er borin fram. Ég þeytti 1dl af rjóma og setti ofaná kökuna. Raðaði svo berjum ofaná rjómann og endaði á rífa smá suðusúkkulaði yfir allt saman. Svo er bara að bera fram og njóta! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Epla-Kanilkaka

Epla-Kanilkaka

Kökudeigið360g hveiti 200g sykur 4 tsk lyftiduft 300ml mjólk 1 tsk vanilludropar 2 egg 110g bráðið smjörEplablandan3 Pink Lady epli (afhýdd og skorin í litla bita) 1 tsk kanill 2 msk sykurKanil- og púðursykurssósa (Á toppinn)150g púðursykur 2 tsk kanill 100g bráðið smjörGlassúr2 dl flórsykur 1 tsk vanilludropar 4 tsk mjólkAðferðSetjið hveiti, sykur og lyftiduft saman í skál og pískið saman.Bætið mjólk, vanilludropum og eggjum út í skálina og pískið vel. Bætið bráðnu smjöri út í í lokin og hrærið þar til deigið er slétt.Skerið eplin í litla terninga, setjið í sér skál ásamt 1 tsk af kanil og 2 msk af sykri. Hristið eða blandið vel saman svo eplin hjúpist vel.Hellið eplablöndunni út í kökudeigið og vendið varlega saman með sleikju.Hellið deiginu í 25 cm hringlaga bökunarform sem hefur verið klædd bökunarpappír og sléttið úr því.Blandið saman púðursykri, 2 tsk af kanil og 100g af bráðnu smjöri í skál þar til komin er fljótandi, ríkuleg kanilsósa.Dreifið sósunni jafnt yfir kökudeigið í forminu.Notið hníf til að dýfa í deigið og gera hringlaga mynstur (marmaramynstur) svo kanilsósan blandist örlítið saman við efsta lag deigsins.Bakið í ofni við 170°C í um það bil 35–45 mínútur. Látið kökuna kólna aðeins.Pískaðu saman flórsykri, vanilludropum og mjólk í skál þar til kominn er sléttur glassúr.Dreifðu glassúrnum yfir kökuna.Skerið í ríflegar sneiðar og njótið með kaffibolla, þeyttum rjóma eða vanilluís. Gjörið svo vel! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Gamla Góða Hjónabandssælan

Gamla Góða Hjónabandssælan

Hráefni375g mjúkt smjör 400g hveiti 170g sykur 135g púðursykur 3 tsk lyftiduft 400g haframjöl 5 kúfaðar msk rabarbarasulta (eða eftir smekk) Smá salt (til að strá yfir áður en bakað er)AðferðBlandið mjúku smjöri, hveiti, sykri og púðursykri vel saman í hrærivélarskál þar til allt hefur samlagast. Bætið lyftidufti og haframjöli út í skálina og hrærið rétt á meðan deigið kemur saman (gætið þess að hræra ekki of mikið). Klæðið bökunarplötu eða stórt mót með bökunarpappír. Setjið um það bil 2/3 af deiginu í mótið og þrýstið því vel og jafnt niður. Dreifið rabarbarasultunni ríflega yfir deigbotninn. Myljið afganginn af deiginu (1/3) yfir sultuna þannig að hún hyljist vel. Stráið smá salti yfir allt saman og bakið í ofni við 170°C í 35–40 mínútur, eða þar til kakan er orðin falleg og gullinbakin. Látið hjónabandssæluna kólna örlítið og skerið í hæfilega ferninga. Berið fram rjúkandi ferska með ískaldri mjólk! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Bounty Súkkulaðikaka

Bounty Súkkulaðikaka

Hráefni Kókosblandan200g kókosmjöl 1 dós niðursoðin sæt mjólk (Condensed milk) 1 eggSúkkulaðikakan1 bolli hveiti 1 bolli sykur 3/4 bolli kakó 1 tsk matarsódi 1/2 tsk salt 1/2 bolli olía 1/2 bolli súrmjólk 1/2 bolli sjóðandi heitt vatn 1 tsk vanilludropar 1 eggSúkkulaði Ganache (Kremið)200g suðusúkkulaði (smátt saxað) 100g rjómi 1 msk smjörAðferðSetjið kókosmjöl, niðursoðna mjólk og egg saman í skál. Blandið öllu vel saman með sleikju þar til komin er þétt og fín kókosblanda. Leggið til hliðar. Setjið hveiti, sykur, kakó, matarsóda og salt saman í skál og pískið saman. Bætið olíu, súrmjólk, sjóðandi heitu vatni, vanilludropum og eggi út í skálina. Hrærið öllu vel saman þar til deigið er slétt og kekkjalaust. Klæðið hringlaga kökuform (ca. 25 cm) með bökunarpappír. Trýstið kókosblöndunni vel og jafnt í botninn á forminu. Hellið súkkulaðideiginu varlega yfir kókoslagið. Bakið í ofni við 170°C í 40–45 mínútur. (Fylgist vel með í lokin, kakan er tilbúin þegar prjónn stunginn í miðjuna kemur hreinn út). Látið kökuna kólna alveg. Saxið suðusúkkulaðið smátt og setjið í skál. Hitið rjómann upp að suðu í litlum potti og hellið honum heitum yfir söxuðu súkkulaðibitana. Bætið 1 msk af smjöri út í og látið standa óhreyft í 2–3 mínútur. Hrærið svo vel í skálinni þar til kremið verður silkimjúkt og gljáandi.SamsetningHvolfið kældu kökunni á kökudisk þannig að kókosbotninn snúi upp (eða hafið hana eins og þér finnst best!). Hellið súkkulaði ganache kreminu yfir kökuna og smyrjið vel úr því yfir toppinn og hliðarnar. Endið á því að strá smá kókosmjöli yfir til skrauts.Skerið í ríflegar sneiðar og njótið! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Allra besta súkkulaðikakan

Allra besta súkkulaðikakan

Ég ætla leyfa mér að fullyrða að þetta sé besta súkkulaðikakan! Ég hef notað þessa uppskrift í mörg ár og eyddi smá tíma í að fínpússa hana þar til hún varð nákvæmlega eins og ég vildi hafa hana. Hún er mjúk, rík af súkkulaðibragði og ótrúlega fjölhæf. Og eitt af því mikilvægasta: hún er rosalega einföld. Þú getur bókstaflega sett hana í ofninn á um það bil 5 mínútum – ég er ekki að ýkja! Ég nota hana í alls konar kökur, hvort sem það er einföld skúffukaka með glassúr eða fallega skreytt kaka með smjörkremi. Hún hentar í allt. Ég mæli hiklaust með að þú prófir hana. Uppskrift (ATH 1 bolli = 2.3dl)2 bollar hveiti 2 bollar sykur 3/4 bollar kakó 2tsk matarsódi 1tsk salt 2 egg 1 bolli súrmjólk 1 bolli olía 1 bolli heitt vatn úr krananum 2tsk vanilludroparÉg byrja á því að blanda þurrefnunum saman, bæti svo restinni af hráefnunum og hrærum velSmyr svo skúffukökuform með olíu og helli deginu í formiðÉg baka svo kökuna á 175 gráðum í 25-30 min View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Snickers kaka

Snickers kaka

Súkkulaðibotnar (ATH: 1 bolli = 2,3 dl)2 bollar hveiti 2 bollar sykur 3/4 bolli kakó 2 tsk matarsódi 1 tsk salt 1 bolli súrmjólk 1 bolli olía 1 bolli heitt vatn úr krananum 2 tsk vanilludroparBlandið öllum þurrefnunum vel saman í skál og blandið saman. Bætið restinni af hráefnunum út í og hrærið vel saman þar til deigið er slétt. Skiptið deiginu jafnt í tvö form (ca. 2 x 25 cm) sem hafa verið klædd bökunarpappír. Bakið við 175°C í 25-30 mínútur. Látið botnana kólna alveg.Heimalöguð Hnetukaramella300g sykur 150g smjör (við stofuhita, skorið í bita) 180ml rjómi 1/2 tsk salt 200g salthneturHitið rjómann upp að suðu í litlum potti og takið af hitanum (mikilvægt svo hann sé heitur þegar hann fer út í sykurinn). Setjið helminginn af sykrinum á pönnu á meðalháan hita og bræðið hann niður. Bætið svo hinum helmingnum við og leyfið öllu að bráðna í gullna karamellu. Takið pönnuna af hitanum og hrærið smjörinu saman við þar til það er bráðnað. Hellið heita rjómanum varlega út í (gætið ykkur, það sýður mikið upp) og blandið vel saman. Setjið saltið út í lokin. Takið 1/3 af karamellunni frá og setjið í sér skál (fyrir toppinn). Restinni (2/3) blandið þið saman við salthneturnar í annarri skál og leyfið báðum blöndum að kólna.Súkkulaðikrem225g smjör 150g suðusúkkulaði 150g rjómasúkkulaði 120g flórsykur 25g kakó 1/2 tsk saltSetjið öll hráefnin saman í pott og bræðið yfir meðalhita þar til allt hefur runnið saman í slétt og gljáandi krem. Hellið kreminu í skál (eða eldfast mót til að flýta fyrir) og geymið í ísskáp í 2-3 klukkustundir svo það stífni og verði smurhæft.SamsetningSetjið neðri botninn á kökudisk. Smyrjið þunnu lagi af súkkulaðikreminu ofan á. Setjið hluta af súkkulaðikreminu í sprautupoka. Sprautið hring með fram jaðrinum á botninum til að búa til „vegg“ sem heldur hnetukaramellunni inni. Hellið salthnetu-karamellublöndunni á mitt kremið og jafnið út. Setjið seinni kökubotninn ofan á. Smyrjið restinni af súkkulaðikreminu jafnt utan um alla kökuna og ofan á hana. Setjið karamelluna (sem var tekin frá) í sprautupoka. Sprautið henni í hringi ofan á kökuna, sléttið aðeins úr henni með spaða og búið til fallegt snúningsmynstur í miðjunni með endanum á spaðanum á meðan þú snýrð diskinum. Skerið Snickers í litla bita og raðið þeim fallega meðfram kanti kökunnar.Berið fram og njótið með góðum kaffibolla eða ískaldri mjólk! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Hættulega einföld kanilkaka

Hættulega einföld kanilkaka

Byrjaðu á því að græja fyllinguna Hráefni150g púðursykur 2 tsk kanill 120g bráðið smjörSetjið púðursykur og kanil saman í skál. Hellið bráðnu smjöri út í og hrærið vel saman. Leggið til hliðar.Kökudeigið360g hveiti 200g sykur 4 tsk lyftiduft 300ml mjólk 1 tsk vanilludropar 2 egg 110g bráðið smjörSetjið hveiti, sykur og lyftiduft saman í skál og hrærið lauslega saman með píski. Hellið mjólk og vanilludropum út í skálina, brjótið eggin saman við og byrjið að píska. Bætið bráðnu smjöri út í deigið á meðan þið pískið og hrærið þar til deigið er kekkjalaust og slétt. Setjið bökunarpappír í skúffukökuform (eða viðeigandi bökunarform). Hellið deiginu í formið og sléttið vel úr því með sleikju. Dreifið kanil- og púðursykursblöndunni jafnt yfir deigið með skeið. Notið svo hníf til að gera hringi eða mynstur í deigið þannig að sósan blandist örlítið saman við kökuna án þess þó að renna alveg inn í hana. Bakið í ofni við 160°C. Ef þú ert með frekar þunnt skúffukökuform (eins og í myndbandinu) tekur þetta um 20 mínútur, en gott er að fylgjast vel með kökunni þar sem bökunartími getur verið mismunandi eftir formum.Látið kökuna kólna lítið eitt, skerið í hæfilega bita og njótið! Hún er dásamleg ein og sér eða með ískaldri mjólk eða góðum kaffibolla.