Hráefni
Kókosblandan
- 200g kókosmjöl
- 1 dós niðursoðin sæt mjólk (Condensed milk)
- 1 egg
Súkkulaðikakan
- 1 bolli hveiti
- 1 bolli sykur
- 3/4 bolli kakó
- 1 tsk matarsódi
- 1/2 tsk salt
- 1/2 bolli olía
- 1/2 bolli súrmjólk
- 1/2 bolli sjóðandi heitt vatn
- 1 tsk vanilludropar
- 1 egg
Súkkulaði Ganache (Kremið)
- 200g suðusúkkulaði (smátt saxað)
- 100g rjómi
- 1 msk smjör
Aðferð
- Setjið kókosmjöl, niðursoðna mjólk og egg saman í skál.
- Blandið öllu vel saman með sleikju þar til komin er þétt og fín kókosblanda. Leggið til hliðar.
- Setjið hveiti, sykur, kakó, matarsóda og salt saman í skál og pískið saman.
- Bætið olíu, súrmjólk, sjóðandi heitu vatni, vanilludropum og eggi út í skálina.
- Hrærið öllu vel saman þar til deigið er slétt og kekkjalaust.
- Klæðið hringlaga kökuform (ca. 25 cm) með bökunarpappír. Trýstið kókosblöndunni vel og jafnt í botninn á forminu. Hellið súkkulaðideiginu varlega yfir kókoslagið.
- Bakið í ofni við 170°C í 40–45 mínútur. (Fylgist vel með í lokin, kakan er tilbúin þegar prjónn stunginn í miðjuna kemur hreinn út). Látið kökuna kólna alveg.
- Saxið suðusúkkulaðið smátt og setjið í skál.
- Hitið rjómann upp að suðu í litlum potti og hellið honum heitum yfir söxuðu súkkulaðibitana.
- Bætið 1 msk af smjöri út í og látið standa óhreyft í 2–3 mínútur.
- Hrærið svo vel í skálinni þar til kremið verður silkimjúkt og gljáandi.
Samsetning
- Hvolfið kældu kökunni á kökudisk þannig að kókosbotninn snúi upp (eða hafið hana eins og þér finnst best!).
- Hellið súkkulaði ganache kreminu yfir kökuna og smyrjið vel úr því yfir toppinn og hliðarnar.
- Endið á því að strá smá kókosmjöli yfir til skrauts.
Skerið í ríflegar sneiðar og njótið!