Epla-Kanilkaka

Epla-Kanilkaka

Mig var búið að langa ótrúlega lengi í góða epla-kanilköku og þessi olli svo sannarlega ekki vonbrigðum! Kakan er dásamleg ein og sér, en hún verður enn betri ef hún er borin fram volg með þeyttum rjóma eða góðum vanilluís!

Kökudeigið

  • 360g hveiti
  • 200g sykur
  • 4 tsk lyftiduft
  • 300ml mjólk
  • 1 tsk vanilludropar
  • 2 egg
  • 110g bráðið smjör

Eplablandan

  • 3 Pink Lady epli (afhýdd og skorin í litla bita)
  • 1 tsk kanill
  • 2 msk sykur

Kanil- og púðursykurssósa (Á toppinn)

  • 150g púðursykur
  • 2 tsk kanill
  • 100g bráðið smjör

Glassúr

  • 2 dl flórsykur
  • 1 tsk vanilludropar
  • 4 tsk mjólk

Aðferð

  1. Setjið hveiti, sykur og lyftiduft saman í skál og pískið saman.

  2. Bætið mjólk, vanilludropum og eggjum út í skálina og pískið vel. Bætið bráðnu smjöri út í í lokin og hrærið þar til deigið er slétt.

  3. Skerið eplin í litla terninga, setjið í sér skál ásamt 1 tsk af kanil og 2 msk af sykri. Hristið eða blandið vel saman svo eplin hjúpist vel.

  4. Hellið eplablöndunni út í kökudeigið og vendið varlega saman með sleikju.

  5. Hellið deiginu í 25 cm hringlaga bökunarform sem hefur verið klædd bökunarpappír og sléttið úr því.

  6. Blandið saman púðursykri, 2 tsk af kanil og 100g af bráðnu smjöri í skál þar til komin er fljótandi, ríkuleg kanilsósa.

  7. Dreifið sósunni jafnt yfir kökudeigið í forminu.

  8. Notið hníf til að dýfa í deigið og gera hringlaga mynstur (marmaramynstur) svo kanilsósan blandist örlítið saman við efsta lag deigsins.

  9. Bakið í ofni við 170°C í um það bil 35–45 mínútur. Látið kökuna kólna aðeins.

  10. Pískaðu saman flórsykri, vanilludropum og mjólk í skál þar til kominn er sléttur glassúr.

  11. Dreifðu glassúrnum yfir kökuna.

  12. Skerið í ríflegar sneiðar og njótið með kaffibolla, þeyttum rjóma eða vanilluís. Gjörið svo vel!