Gamla Góða Hjónabandssælan

Gamla Góða Hjónabandssælan

Það jafnast fátt við alvöru, heimalagada hjónabandssælu. Þessi uppskrift er ofsalega einföld, dásamlega stökk og ljúffeng. Sérstaklega þegar hún er bökuð með góðri heimagerðri rabarbarasultu! Ég mæli með að strá smá salti yfir deigið áður en það fer í ofninn – það gerir mikið fyrir bragðið!

Hráefni

  • 375g mjúkt smjör
  • 400g hveiti
  • 170g sykur
  • 135g púðursykur
  • 3 tsk lyftiduft
  • 400g haframjöl
  • 5 kúfaðar msk rabarbarasulta (eða eftir smekk)
  • Smá salt (til að strá yfir áður en bakað er)

Aðferð

  1. Blandið mjúku smjöri, hveiti, sykri og púðursykri vel saman í hrærivélarskál þar til allt hefur samlagast.
  2. Bætið lyftidufti og haframjöli út í skálina og hrærið rétt á meðan deigið kemur saman (gætið þess að hræra ekki of mikið).
  3. Klæðið bökunarplötu eða stórt mót með bökunarpappír. Setjið um það bil 2/3 af deiginu í mótið og þrýstið því vel og jafnt niður.
  4. Dreifið rabarbarasultunni ríflega yfir deigbotninn.
  5. Myljið afganginn af deiginu (1/3) yfir sultuna þannig að hún hyljist vel.
  6. Stráið smá salti yfir allt saman og bakið í ofni við 170°C í 35–40 mínútur, eða þar til kakan er orðin falleg og gullinbakin.
  7. Látið hjónabandssæluna kólna örlítið og skerið í hæfilega ferninga. Berið fram rjúkandi ferska með ískaldri mjólk!