Hollari Beyglur úr Grískri Jógúrt

Hollari Beyglur úr Grískri Jógúrt

Þær eru ótrúlega auðveldar, fljótlegar og mun hollari en venjulegar beyglur! Hér er engin gerhefing og engin suða – bara blandað, mótað og bakað. Í þessari uppskrift eru gerðar tvær mismunandi útgáfur: Jalapeño & Cheddar og Everything Bagel

Hráefni

  • 4,5 dl grísk jógúrt
  • 4,5 dl hveiti (t.d. Körnax hvítu eða bláu pokarnir)
  • 2 tsk lyftiduft
  • 1 tsk salt
  • 1 egg (slegið saman til að pensla)
  • Valmöguleiki 1: ca. 6–10 jalapeño bita (smátt saxaðir) + 1 dl rifinn cheddarostur
  • Valmöguleiki 2: Everything Bagel kryddblanda (t.d. frá McCormick)

Aðferð

  1. Setjið gríska jógúrt, hveiti, lyftiduft og salt í stóra skál.
  2. Hrærið öllu lauslega saman með sleikju og hellið svo deiginu á hveitistráð borð.
  3. Hnoðið deigið mjúklega í höndunum í nokkrar mínútur þar til það kemur saman í slétta og fína kúlu.

Ef þú vilt gera beiglur með jalapeño og cheddar: Stráið söxuðum jalapeño og hluta af cheddarostinum yfir deigið og hnoðið varlega saman.

  1. Skiptið deiginu í 8 hluta.
  2. Mótið hvern hluta í kúlu og stingið fingri í gegnum miðjuna til að búa til beyglugat. Togið og snúið deiginu léttilega til að stækka gatið.
  3. Raðið beyglunum á ofnplötu klædda bökunarpappír.
  4. Penslið allar beyglurnar vel með slegnu eggi.
  5. Jalapeño-beyglurnar: Raðið auka jalapeño-sneiðum á toppinn og stráið vel af rifnum cheddarost yfir.
  6. Everything Bagel-beyglurnar: Stráið ríflega af Everything Bagel kryddi yfir.
  7. Bakið í ofni við 170°C í um það bil 20–25 mínútur, eða þar til þær eru orðnar fallega gylltar.
  8. Látið beyglurnar kólna aðeins á grind. Skerið í tvennt, smyrjið með rjómaosti eða uppáhalds álegginu þínu og njótið!