Hot Honey BBQ Kjúklingaborgari

Hot Honey BBQ Kjúklingaborgari

Þessi borgari er í miklu uppáhaldi hjá mér og klikkar einfaldlega aldrei. Kjúklingalærin fá dásamlega stökkan hjúp úr Doritos sem er ofnbakaður, og svo eru þau dýfð í sæta og sterka Hot Honey BBQ sósu!

1. Stökk Kjúklingalæri

Hráefni

  • 4-6 kjúklingalæri (útslegin eða beinlaus)
  • 2 egg
  • 1 poki Doritos (gult/Nacho Cheese eða svart/Sweet Chili)
  • 1-2 tsk kjúklingakrydd (t.d. Rotisserie kjúklingakrydd)

Aðferð

  1. Brjótið eggin í skál og pískið saman.
  2. Setjið Doritos í poka, myljið vel niður og hellið í aðra skál.
  3. Dýfið kjúklingalærunum fyrst í eggjablandana og veltið þeim svo vel upp úr Doritos flögunum.
  4. Raðið lærunum á ofnplötu klædda bökunarpappír og stráið smá kjúklingakryddi yfir.
  5. Bakið í ofni við 180°C í um það bil 20 mínútur þar til hjúpurinn er orðinn stökkur og kjúklingurinn eldaður í gegn.

2. Hot Honey BBQ Sósa

Á meðan kjúklingurinn er í ofninum er sósan græjuð.

Hráefni

  • 2 dl BBQ sósa
  • 1 dl Hot Honey (sterkt hunang)
  • 1 tsk hvítlaukskrydd
  • 1 tsk sítrónusafi

Aðferð

  1. Setjið öll hráefnin saman í skál og hrærið vel þar til sósan er slétt og jöfn.
  2. Þegar kjúklingurinn kemur rjúkandi heitur úr ofninum er hverju læri dýft beint í sósuna þannig að hún hylji hjúpinn alveg.

3. Samsetning á borgara

Hráefni & Meðlæti

  • Borgarabrauð
  • Majónes
  • Kál
  • Tómatar
  • Súrar gurkur

Aðferð

  1. Ristið borgarabrauðin léttilega ef vill og smyrjið majónesi á bæði efri og neðri helming.
  2. Raðið káli, tómatsneiðum og súrum gúrkum á neðri helminginn.
  3. Setjið hjúpaða Hot Honey BBQ kjúklinginn ofan á meðlætið og lokið borgaranum.

Berið fram og njótið!