Hunangs- og Sítrónukjúklingur með Fersku Gúrkusalati

Hunangs- og Sítrónukjúklingur með Fersku Gúrkusalati

Þessi réttur er ótrúlega einfaldur en á sama tíma ofboðslega bragðgóður! Stökk kjúklingalæri, sósan er dásamlega sæt og fersk, og marineraða gúrkusalatið passar fullkomlega á móti djúpa bragðinu í kjúklingnum.

Hráefni

  • 4–6 kjúklingalæri
  • Salt og pipar
  • Maíssterkja (cornstarch, til að velta kjúklingnum upp úr)
  • Olía til steikingar

Ferskt Gúrkusalat

  • 1 gúrka (skorin í pappanúnar sneiðar, t.d. með ostaskera eða hníf)
  • 1/4 rauðlaukur (skorinn í þunnar sneiðar/strimla)
  • 1 msk ólífuolía
  • 1 tsk hvítvínsedik
  • Salt og pipar
  • Smá chili flögur

Hunangs- og Sítrónusósa

  • 2 msk smjör
  • 2 hvítlauksgeirar (pressaðir)
  • 1 dl sojasósa (ég var með ljósa sojasósu)
  • 3 msk hunang
  • 1/2 tsk chili flögur
  • 1 tsk rifinn sítrónubörkur
  • Safi úr 1/2 sítrónu

Aðferð

  1. Kryddið kjúklingalærin með salti og pipar.
  2. Veltið kjúklingnum vel upp úr maíssterkju þannig að hún hylji bitana alveg.
  3. Hitið olíu á pönnu og steikið kjúklinginn á báðum hliðum þar til hann er kominn með stökka og gullna húð og er gegnumeldaður.
  4. Takið kjúklinginn af pönnunni og setjið á disk til hliðar.
  5. Á sömu pönnu, bræðið smjörið og steikið pressaðan hvítlauk í stutta stund.
  6. Bætið sojasósu, hunangi, chili flögum, rifnum sítrónuberki og sítrónusafa út á pönnuna.
  7. Látið sósuna malla í 2–3 mínútur þar til hún þykknar og verður gljáandi.
  8. etjið steikta kjúklinginn aftur út á pönnuna í sósuna, snúið bitunum við og ristið aðeins til að sósan hylji kjúklinginn alveg.
  9. Skerið gúrkuna og rauðlaukinn í þunnar sneiðar og setjið í skál/dós með loki.
  10. Bætið ólífuolíu, hvítvínsediki, salti, pipar og chili flögum út í.
  11. Setjið lok á skálina og hristið vel saman svo allt marinérist.+
  12. Skerið kjúklinginn í sneiðar. Setjið soðin hrísgrjón í skál, raðið kjúklingnum ofan á og skellið ríflegum skammti af ferska gúrkusalatinu við hliðina.
  13. Auka sósu er hellt yfir kjúklinginn og endað á að strá graslauki og sesame fræjum yfir allt saman. Gjörið svo vel!