Byrjaðu á því að græja fyllinguna
Hráefni
- 150g púðursykur
- 2 tsk kanill
- 120g bráðið smjör
- Setjið púðursykur og kanil saman í skál.
- Hellið bráðnu smjöri út í og hrærið vel saman. Leggið til hliðar.
Kökudeigið
- 360g hveiti
- 200g sykur
- 4 tsk lyftiduft
- 300ml mjólk
- 1 tsk vanilludropar
- 2 egg
- 110g bráðið smjör
- Setjið hveiti, sykur og lyftiduft saman í skál og hrærið lauslega saman með píski.
- Hellið mjólk og vanilludropum út í skálina, brjótið eggin saman við og byrjið að píska.
- Bætið bráðnu smjöri út í deigið á meðan þið pískið og hrærið þar til deigið er kekkjalaust og slétt.
- Setjið bökunarpappír í skúffukökuform (eða viðeigandi bökunarform). Hellið deiginu í formið og sléttið vel úr því með sleikju.
- Dreifið kanil- og púðursykursblöndunni jafnt yfir deigið með skeið. Notið svo hníf til að gera hringi eða mynstur í deigið þannig að sósan blandist örlítið saman við kökuna án þess þó að renna alveg inn í hana.
- Bakið í ofni við 160°C. Ef þú ert með frekar þunnt skúffukökuform (eins og í myndbandinu) tekur þetta um 20 mínútur, en gott er að fylgjast vel með kökunni þar sem bökunartími getur verið mismunandi eftir formum.
Látið kökuna kólna lítið eitt, skerið í hæfilega bita og njótið! Hún er dásamleg ein og sér eða með ískaldri mjólk eða góðum kaffibolla.