Kjúklinga fajitas

Kjúklinga fajitas

Hér er einföld og fljótleg uppskrift af kjúklinga fajitas. Allt gert í einu eldföstu móti, borið fram með heimagerðu guacamole og geggjaðri chili-mæjó sósu!

Kjúklingur & Grænmeti

  • 3 kjúklingabringur
  • 2 laukar
  • 2 rauðar paprikur
  • 3 hvítlauksgeirar
  • 3 msk olía
  • 1 pakki fajitas krydd
  1. Skerið lauk og papriku í strimla og setjið í skál.
  2. Pressið hvítlauksgeirana út í skálina.
  3. Skerið kjúklingabringurnar í strimla og bætið þeim við.
  4. Hellið olíunni yfir, stráið fajitas kryddinu og blandið öllu vel saman.
  5. Setjið blönduna í eldfast mót og bakið í ofni við 180°C í 25 mínútur.

Guacamole

  • 2 avókadó
  • 1 hvítlauksgeiri
  • Safi úr hálfri sítrónu
  • Salt eftir smekk
  1. Stappið avókadóið vel með gaffli og setjið í skál.
  2. Pressið hvítlauksgeira út í og kreistið sítrónusafann yfir.
  3. Kryddið með smá salti og hrærið vel saman.

Chili-Mæjó

  • 2 dl mæjónes
  • 1 msk sriracha sósa
  • 1/2 dl sweet chili sósa
  • 1 tsk hvítlauksduft
  • Safi úr hálfri sítrónu
  • Salt eftir smekk
  1. Setjið majónes, sriracha og sweet chili sósu í skál.
  2. Bætið hvítlauksdufti, sítrónusafa og smá salti út í.
  3. Blandið öllu vel saman þar til sósan er slétt.

Samsetning

Hitið tortillakökur, smyrjið guacamole í botninn, setjið vel af kjúklingi og grænmeti ofan á, og toppið svo með chili-majó sósunni. Njótið!