Ofnbökuð kjúklingalæri og kartöflur
- 07 Jun, 2026
Þessi réttur er ofboðslega einfaldur og fullkominn þegar þig vantar fljótlegan og þægilegan mat á virkum dögum. Allt eldað í einu og sama fatinu svo uppvaskið er í lágmarki!
Hráefni
- Kjúklingalæri (ca. 6-8 stk úr einum pakka)
- 10 kartöflur
- 1 lítill brokkolíhaus
- 2msk Olía (til að velta kartöflum og kjúklingi upp úr)
- Hvítlaukskrydd, paprika, pipar og salt
- Smá chili flögur (chili flakes)
- Rotisserie chicken krydd (t.d. frá McCormick)
- Skerið kartöflurnar í litla bita og setjið þær í eldfast mót. Hellið um það bil 2 matskeiðum af olíu yfir og kryggið vel með hvítlaukskryddi, papriku, pipar, salti og smá chili flögum. Blandið þessu vel saman.
- Skerið brokkolíið í litla bita, dreifið yfir kartöflurnar og blandið saman.
- Setjið kjúklingalærin í sér skál, hellið smá olíu yfir og kryddið vel með Rotisserie chicken kryddi (eða öðru góðu kjúklingakryddi). Blandið vel.
- Raðið krydduðu kjúklingalærunum ofan á kartöflu- og brokkolíblönduna.
- Setjið fatið inn í ofn á 180°C í um það bil 30 mínútur.
Berið réttinn fram beint úr fatinu ásamt ferska salatinu. Það er líka einstaklega gott að dreyfa smá hvítlaukssósu yfir allt saman áður en þú borðar!