Hráefni
- 390ml volgt vatn
- 1 tsk sykur
- 1,5 tsk ger
- 1 msk olía
- 500g brauðhveiti
- 2 tsk salt
- 2 tsk kúmenfræ
Aðferð
1. Deigið blandað
- Blandið saman volgu vatni, sykri, geri, olíu, brauðhveiti og salti í stórri skál (öll hráefni nema kúmenið). Hrærið vel saman með sleikju þar til öll þurrefni hafa samlagast.
- Hyljið skálina með klút og látið hefast í 15 mínútur.
2. Stretch & Fold skrefin
- Stráið helmingnum af kúmenfræjunum (1 tsk) yfir deigið. Gerið stretch & fold (togið í deigið upp úr skálinni og brettið það yfir sig sjálft, snúið skálinni og endurtakið um 10 sinnum). Hyljið skálina og látið hefast aftur í 15 mínútur. (Þið getið sé nákvæma aðferð í myndbandinu neðst í uppskriftinni)
- Stráið afganginum af kúmenfræjunum (1 tsk) yfir deigið og gerið stretch & fold aftur á sama hátt.
- Hyljið skálina og látið deigið hefast í 90 mínútur.
3. Mótun & Bökun
- Hellið deiginu á hveitistráð borð. Brettið deigið saman og rúllið/dragið það á borðinu til að búa til spennu á yfirborð deigkúlunnar.
- Setjið deigkúluna á bökunarpappír, hyljið með skálinni og látið hefast í 20 mínútur.
- Á meðan deigið hefast í seinna skiptið, hitið pott með loki (t.d. steypujárnspott) í ofninum við 240°C.
- Skerið kross eða fallegt mynstur í toppinn á brauðinu með beössum hníf. Takið heita pottinn úr ofninum, lyftið brauðinu á bökunarpappírnum varlega ofan í pottinn og setjið lokið á.
- Bakið í ofninum við 240°C í 45 mínútur.
Framreiðsla
Takið brauðið úr pottinum og látið það kólna á grind. Skerið í sneiðar, smyrjið vel af smjöri og álegg og njótið!