Marens Terta með Kókosbollu Rjóma

Marens Terta með Kókosbollu Rjóma

Marensgúmmelaði sem gerist hreinlega ekki mikið betra en þetta! Þessi púðursykursmarens er dásamlega stökkur að utan en seigur og mjúkur að innan. Fyllingin er svo rjómi blandaður með suðusúkkulaðibitum og stappaðri kókosbollu. Þetta er alvöru veislukaka sem slær í gegn!

Hráefni

  • 5 eggjahvítur
  • 5 dl púðursykur
  • 500 ml rjómi (+1dl til að skreyta)
  • 100g suðusúkkulaði (skorið í litla bita)
  • 1 pakki kókosbollur
  • Fersk ber til að skreyta
  • Rifið suðusúkkulaði

Aðferð

  1. Byrjum á að stifþeyta eggjahvitur og púðursykur. Þetta tekur 10-15 mín en við vitum að marensinn er tilbúinn þegar við getum hvolft skálinni og hrist hana til án þess að marensinn haggist.
  2. Skiptum blöndunni í tvennt og dreifum úr á bökunarpappír. (Ég teikna hring á pappírinn svo botnarnir séu jafnt stórir)
  3. Bökum á 120 gráðum í 60min (blástur). Þá slekk ég á ofninum og leyfir marensinum að kólna inní honum.
  4. Nú getum við fyllinguna. Byrjum á að þeyta rjómann (500ml) og skerum súkkulaðið í bita og blöndum saman við. Að lokum setjum við kókosbollurnar saman við og blöndum þeim vel við. Mér finnst gott að merja kókosbollurnar svolítið á meðan ég blanda þeim saman við rjómann.
  5. Setjum svo rjómann á milli botnanna og geymum inní ísskáp í amk 12 klukkutíma.
  6. Ef þið viljið má skreyta kökuna áður en hún er borin fram. Ég þeytti 1dl af rjóma og setti ofaná kökuna. Raðaði svo berjum ofaná rjómann og endaði á rífa smá suðusúkkulaði yfir allt saman.
  7. Svo er bara að bera fram og njóta!