Pestó Brauð

Pestó Brauð

Ég var í smá tilraunastarfsemi með brauðuppskriftina mína og þetta kom svo vel út að ég verð bara að deila uppskriftinni með ykkur!

Hráefni

  • 390 ml volgt vatn
  • 1 tsk sykur
  • 1,5 tsk ger
  • 1 msk olía
  • 500 g brauðhveiti
  • 2 tsk salt
  • 1 krukka pestó (t.d. rautt chili pestó eða hefðbundið grænt pestó)

Aðferð

1. Deigið blandað

  1. Blandið saman volgu vatni, sykri, geri, olíu, brauðhveiti og salti í stórri skál (öll hráefni nema pestóið).

  2. Hrærið vel saman með sleikju þar til engin þurr hveitiögn er eftir.

  3. Hyljið skálina og látið hefast í 15 mínútur.

  4. Stráið 2 msk af pestói yfir deigið. Gerið stretch & fold (togið í deigið upp úr skálinni og brettið það yfir sig sjálft, snúið skálinni og endurtakið um 10 sinnum).

  5. Hyljið skálina og látið hefast aftur í 15 mínútur.

  6. Gerið stretch & fold aftur á sama hátt (án þess að bæta við pestói í þetta skiptið).

  7. Hyljið skálina og látið deigið hefast í 90 mínútur.

  8. Stráið smá hveiti á borðið og hellið deiginu úr skálinni.

  9. Þrýstu deiginu varlega út í ferning.

  10. Smyrjið meira pestói á miðjuna, brettið 1/3 af deiginu yfir, smyrjið aftur pestói og brettið hinn helminginn yfir (eins og að bretta bréf).

  11. Smyrjið pesto á toppinn og rúllið deiginu þétt upp í kúlu til að búa til spennu á yfirborð deigsins.

  12. Setjið deigkúluna á bökunarpappír, hyljið með skálinni og látið hefast í 20 mínútur.

  13. Á meðan brauðið hefast, hitið pott með loki í ofninum við 240°C.

  14. Skerið lauslega nokkrar rendur í toppinn á brauðinu með hvössum hníf. Takið heita pottinn úr ofninum, lyftið brauðinu á bökunarpappírnum varlega ofan í pottinn og setjið lokið á.

  15. Bakið í ofninum við 240°C í 45 mínútur.

  16. Látið brauðið kólna aðeins á grind áður en það er skorið. Skerið í sneiðar og njótið!