Ofnbökuð risa tortilla með kjúklingi

Ofnbökuð risa tortilla með kjúklingi

Ofnbökuð risa tortilla með kjúklingi sem einfalt er að skella saman og bjóða uppá á virku kvöldi þegar tíminn er af skornum skamti!

  • 12 tortilla kökur (stórar)
  • 1 pakki tilbúinn kjúklingur (t.d. rifinn eða smátt skorinn)
  • 1 rauðlaukur
  • 1 dós maískorn
  • 1/2 pakki rifinn ostur
  • 1 dós Sýrður rjómi
  • 1 krukka Salsa sósa
  • 1 pakki fajitas kryddblanda
  • Smjör (til að smyrja ofnplötuna)
  1. Skerið kjúklinginn smátt niður ef þarf og setjið í stóra skál.
  2. Saxið rauðlaukinn niður og bætið út í skálina ásamt maískornum.
  3. Setjið rifna ostinn, sýrða rjómann og salsa sósuna saman við og hrærið lauslega.
  4. Bætið fajitas kryddinu út í blönduna og hrærið öllu vel saman.
  5. Smyrjið ofnplötu vel með smjöri.
  6. Raðið tortilla kökunum á plötuna þannig að þær hylji botninn og hliðarnar, en látið þær hanga aðeins út af brúnunum (notaðar eru um 10-11 kökur í þetta skref).
  7. Hellið kjúklingablöndunni yfir kökurnar og dreifið jafnt úr henni með skeið.
  8. Setjið 1-2 tortilla kökur beint á miðjuna, ofan á fyllinguna.
  9. Brjótið brúnirnar á neðri kökunum inn á við til að loka réttinum alveg.
  10. Penslið eða smyrjið efsta lagið á kökunum léttilega með smjöri.
  11. Setjið aðra ofnplötu ofan á réttinn til að halda kökunum vel lokuðum og flötum á meðan þær bakast.
  12. Bakið í ofni við 200°C í 20 mínútur.
  13. Takið efri ofnplötuna af og skerið risa tortilluna niður í hæfilega bita (t.d. með pítsuskera).

Berið fram með því meðlæti sem þið viljið, ég notaði:

  • Sýrðan rjóma
  • Salsa sósu
  • Smátt saxaðan rauðlauk