Ofnbökuð risa tortilla með hakki
- 02 Mar, 2026
Þetta er frábær og einföld útfærsla á risa tortillunni! Í þetta skiptið erum við með bragðgóða hakkfyllingu, maísbaunir og fullt af rifnum osti. Ofsalega fljótlegur og þægilegur kvöldmatur sem klikkar aldrei!
Hráefni
- 12 tortilla kökur (stórar)
- 1 pakki nautahakk
- 1 laukur
- 1 pakki Taco kryddblanda
- 1 dós salsa sósa
- 1 dós maískorn
- 1 kúfuð msk rjómaostur
- Smá salt
- Pasta Rossa krydd (eða annað gott krydd eftir smekk)
- 1 Rauðlaukur
- Rifinn ostur
- Olía (til að smyrja ofnplötuna)
- Skerið lauk smátt niður og steikið á pönnu þar til hann mýkist.
- Bætið nautahakkinu út á pönnuna og steikið þar til það er full eldað.
- Skellið taco-kryddinu og heilli dós af salsa sósu saman við.
- Bætið við rjómaosti og einni dós af maísbaunum. Hrærið öllu vel saman.
- Kryddið til með smá salti og Pasta Rossa kryddi eftir smekk til að fínstilla bragðið. Slökkvið svo undir pönnunni.
Samsetning
- Smyrjið ofnplötu vel með olíu.
- Raðið tortilla kökunum í hring á plötuna þannig að þær hylji botninn en hangi vel út af hliðunum, ásamt einni köku á miðjunni.
- Hellið hakkblöndunni beint ofan á og dreifið jafnt úr henni.
- Stráið smátt söxuðum rauðlauk og rifnum osti yfir allt saman.
- Setjið eina tortilla köku yfir miðjuna og brjótið brúnirnar á hinum kökunum inn á við til að loka réttinum alveg.
- Setjið aðra ofnplötu ofan á réttinn sem farg svo hún bakist jafnt og haldi forminu.
- Bakið í ofni við 200°C í um það bil 15 mínútur.
Skerið risa tortilluna niður í bita.
Toppið hvern bita með:
- Skeið af sýrðum rjóma
- Salsa sósu
- Smátt söxuðum ferskum rauðlauk
Gjörið svo vel, dásamlega einfaldur og djúsí taco-réttur!