Saltkaramellu- Rjómaosta Gúmmelaðikökur

Saltkaramellu- Rjómaosta Gúmmelaðikökur

Þessar stóru, mjúku og djúsí gúmmelaðikökur komu mér vel á óvart – þær eru gjörsamlega geggjaðar! Fullkomnar til að bjóða upp á í veislum eða einfaldlega þegar þig langar í eitthvað extra lúxus með kaffinu.

Heimalöguð Saltkaramella

Gott er að byrja á karamellunni svo hún fái góðan tíma til að kólna áður en hún fer á kökurnar.
(Sniðugt trikk: Ef þú ert í tímahraki má líka bræða tilbúnar karamellur í potti og þynna með smá rjóma eða mjólk!)

Hráefni

  • 150g sykur
  • 75g smjör
  • 90ml rjómi (volgur)
  • 1/2 tsk salt

Aðferð

  1. Setjið sykurinn á pönnu á miðlungs hita. Fylgist vel með á meðan hann bráðnar og verður gullinn (passið að brenna hann ekki).
  2. Bætið smjörinu út í og blandið vel saman.
  3. Bætið að lokum volgum rjómanum út á og hrærið vel saman.
  4. Endið á að setja saltið út í og hræra vel.
  5. Færið karamelluna yfir í skál sem þolir hita og leyfið henni að kólna vel.

Kökurnar

Hráefni

  • 340g smjör (við stofuhita)
  • 200g sykur
  • 200g púðursykur
  • 4 egg
  • 2 tsk vanilludropar
  • 500g hveiti
  • 2 tsk lyftiduft
  • 2 tsk maíssterkja (cornstarch)
  • 1/2 tsk salt

Aðferð

  1. Hitið ofninn í 175°C (blástur) eða 190°C (undir/yfirhita) og klæðið bökunarplötu með bökunarpappír.
  2. Þeytið saman smjör, sykur og púðursykur í stórri skál þar til blandan er mjúk og slétt.
  3. Bætið eggjum (einu og einu í einu) og vanilludropum út í og hrærið þar til allt er vel blandað og kremað.
  4. Blandið þurrhráefnunum varlega saman við smjörblönduna. Hrærið bara þar til allt hefur samlagast – gætið þess að hræra ekki of mikið.
  5. Mótið kúlur úr deiginu með skeið eða ísskeið og raðið á plötuna. Skiljið eftir um 5 cm millirými því kökurnar fletjast út.
  6. Bakið í 10–12 mínútur, eða þar til kantarnir verða ljósgylltir en miðjan er enn vel mjúk.
  7. Látið kökurnar standa á bökunarplottunni í nokkrar mínútur áður en þær eru færðar á grind til að kólna alveg.

Rjómaostaglassúr

Hráefni

  • 225g (8 oz) rjómaostur (við stofuhita)
  • 4 msk smjör (við stofuhita)
  • 1 tsk vanilludropar
  • 240g flórsykur

Aðferð

  1. Þeytið rjómaost og smjör saman í 2–3 mínútur þar til blandan er létt og loftkennd.
  2. Bætið vanilludropum og flórsykri út í og hrærið vel saman í sléttan glassúr.

Samsetning

  1. Setjið rjómaostaglassúrinn og kældu karamelluna í hvorn sinn sprautupokann (eða smyrjið með skeið/spaða).
  2. Sprautið rjómaostaglassúrnum í jöfnum hringjum yfir kældar kökurnar.
  3. Toppið með því að sprauta saltkaramellunni í fallegu mynstri yfir glassúrinn.

Berið fram og njótið ríflega!