Sesar Vefja
- 11 Jun, 2026
Hráefni
- 1 stór kjúklingabringur
- Rotisserie Chicken krydd (t.d. frá McCormick)
- 1 haus kínakál
- ca. 1 dl nýrifinn parmesanostur
- 1/2 stöng gúrka
- 1/2 poki brauðteningar
- Sesar dressing
- Smá salt
- Safi úr 1/2 sítrónu
- Tortillakökur
Aðferð
-
Skerið stóra kjúklingabringu í tvennt eftir endilöngu til að fá tvo þunn stykki.
-
Kryddið vel beggja vegna með Rotisserie Chicken kryddi.
-
Steikið á pönnu við meðalhita þar til kjúklingurinn er í gegnumeldaður og kominn með fallega gyllta húð.
-
Takið kjúklinginn af pönnunni, látið hvíla í stutta stund og skerið svo í litla bita/teninga.
-
Saxið kínakálið mjög smátt og setjið í stóra skál.
-
Rífið um 1 dl af ferskum parmesanosti út í skálina.
-
Bætið við söxuðum gúrkubitum, brauðteningum og söxuðum kjúklingnum.
-
Hellið Sesar dressingunni yfir allt saman (magn eftir smekk).
-
Smakkið til með smá salti og kreistið ferskan sítrónusafa yfir í lokin – þetta gerir gæfumuninn!
-
Blandið öllu vel og rækilega saman.
-
Sestjið vel af sesarsalatinu í miðjuna á tortillaköku.
-
Bróttið hliðarnar inn og rúllið vefjunni þétt upp.
-
Hitið þurra pönnu og ristið vefjuna í um 1–2 mínútur á hvorri hlið (eða þar til hún er orðin brúnleit og stökk að utan).
-
Skerið vefjuna í tvennt og berið fram rjúkandi ferska. Njótið!