Snickers kaka
Mér var sagt að þetta væri ein besta kaka sem ég hef gert – og ég get alveg verið sammála því, hún er dásamlega góð! Þetta er rík og matarmikil lúxuskaka þar sem mjúkir súkkulaðibotnar mæta heimalagaðri karamellu, salthnetum og silkimúku súkkulaðikremi.
*Það er upplagt að græja alla hlutana (botna, karamellu og krem) daginn áður og setja hana svo saman þegar þú ætlar að bera hana fram.
Súkkulaðibotnar
(ATH: 1 bolli = 2,3 dl)
- 2 bollar hveiti
- 2 bollar sykur
- 3/4 bolli kakó
- 2 tsk matarsódi
- 1 tsk salt
- 1 bolli súrmjólk
- 1 bolli olía
- 1 bolli heitt vatn úr krananum
- 2 tsk vanilludropar
- Blandið öllum þurrefnunum vel saman í skál og blandið saman.
- Bætið restinni af hráefnunum út í og hrærið vel saman þar til deigið er slétt.
- Skiptið deiginu jafnt í tvö form (ca. 2 x 25 cm) sem hafa verið klædd bökunarpappír.
- Bakið við 175°C í 25-30 mínútur. Látið botnana kólna alveg.
Heimalöguð Hnetukaramella
- 300g sykur
- 150g smjör (við stofuhita, skorið í bita)
- 180ml rjómi
- 1/2 tsk salt
- 200g salthnetur
- Hitið rjómann upp að suðu í litlum potti og takið af hitanum (mikilvægt svo hann sé heitur þegar hann fer út í sykurinn).
- Setjið helminginn af sykrinum á pönnu á meðalháan hita og bræðið hann niður. Bætið svo hinum helmingnum við og leyfið öllu að bráðna í gullna karamellu.
- Takið pönnuna af hitanum og hrærið smjörinu saman við þar til það er bráðnað.
- Hellið heita rjómanum varlega út í (gætið ykkur, það sýður mikið upp) og blandið vel saman. Setjið saltið út í lokin.
- Takið 1/3 af karamellunni frá og setjið í sér skál (fyrir toppinn). Restinni (2/3) blandið þið saman við salthneturnar í annarri skál og leyfið báðum blöndum að kólna.
Súkkulaðikrem
- 225g smjör
- 150g suðusúkkulaði
- 150g rjómasúkkulaði
- 120g flórsykur
- 25g kakó
- 1/2 tsk salt
- Setjið öll hráefnin saman í pott og bræðið yfir meðalhita þar til allt hefur runnið saman í slétt og gljáandi krem.
- Hellið kreminu í skál (eða eldfast mót til að flýta fyrir) og geymið í ísskáp í 2-3 klukkustundir svo það stífni og verði smurhæft.
Samsetning
- Setjið neðri botninn á kökudisk. Smyrjið þunnu lagi af súkkulaðikreminu ofan á.
- Setjið hluta af súkkulaðikreminu í sprautupoka. Sprautið hring með fram jaðrinum á botninum til að búa til „vegg“ sem heldur hnetukaramellunni inni.
- Hellið salthnetu-karamellublöndunni á mitt kremið og jafnið út. Setjið seinni kökubotninn ofan á.
- Smyrjið restinni af súkkulaðikreminu jafnt utan um alla kökuna og ofan á hana.
- Setjið karamelluna (sem var tekin frá) í sprautupoka. Sprautið henni í hringi ofan á kökuna, sléttið aðeins úr henni með spaða og búið til fallegt snúningsmynstur í miðjunni með endanum á spaðanum á meðan þú snýrð diskinum.
- Skerið Snickers í litla bita og raðið þeim fallega meðfram kanti kökunnar.
Berið fram og njótið með góðum kaffibolla eða ískaldri mjólk!