Steiktar Tortillur með Kjúkling
- 15 Sep, 2026
Hráefni
-
8 kjúklingalæri
-
2 paprikur
-
1 rauðlaukur
-
Olía
-
Uppáhalds kjúklingakryddið þitt - Ég nota Best á Kjúklinginn
-
Tortillakökur (litlar eða meðalstórar)
-
Rifinn ostur
-
Olía til steikingar
-
Hvítlaukssósa (til að sprauta yfir í lokin)
-
Kirsuberjatómatar
-
Gúrka
-
Olívolía
-
Sítrónusafi
-
Salt og pipar
Aðferð
-
Skerið paprikur, rauðlauk og kjúklingalæri í strimla/ræmur.
-
Setjið allt saman í eldfast mót, hellið smá olíu yfir og kryggið vel með góðu kjúklingakryddi.
-
Blandið öllu vel saman og bakið í ofni við 200°C í um 20 mínútur.
-
Á meðan kjúklingurinn er í ofninum, skerið tómata og gúrku í litla bita og setjið í skál.
-
Bætið við smá ólífuolíu, sítrónusafa, salti og pipar og hrærið vel saman.
-
Hitið smá olíu á pönnu við meðalhita og leggið tortillaköku á pönnuna.
-
Stráið vel af rifnum osti yfir alla kökuna.
-
Setjið hæfilegan skammt af ofnbakaða kjúklinga- og grænmetisblöndunni á annan helminginn af tortillunni.
-
Brettið hinn helminginn yfir svo úr verði hálfmáni og steikið á báðum hliðum þar til tortillan er orðin stökk og gyllt og osturinn alveg bráðnaður.
-
Opnið tortilluna og skellið fersku salti inn í og toppið með hvítlaukssósu.
Berið fram rjúkandi heitt og njótið!