Hakk og Spagetti

Hakk og Spagetti

Hakk og Spagetti er klassísk uppskrift sem allir ættu að kunna að gera. Þetta er réttur sem er í miklu uppáhaldi á mínu heimili og er því mjög regluglega í kvöldmatinn. Klassískt, gott og fljótlegt! Gerist ekki betra!

Hráefni

  • 300gr spagettí
  • 500gr nautahakk
  • Salt og pipar
  • Hvítlaukskrydd
  • Laukkrydd
  • Paprikukrydd
  • 1 dós/krukka pastasósa (t.d. Tomato, Garlic & Onion frá Essential Everyday - eða bara það sem ykkur finnst best)
  • Ferskur parmesanostur (rifinn yfir í lokin)

Aðferð

  1. Hitið vatn í potti upp á suðu og saltið það vel.
  2. Hitið smá olíu á pönnu og steikið nautahakkið. Kryddið með salti, pipar, hvítlaukskryddi, laukkryddi og paprikukryddi.
  3. Hellið allri krukkunni af pastasósu út á pönnuna hjá hakkinu. Hrærið vel saman og látið sósuna malla á vægum hita.
  4. Þegar vatnið fer að sjóða, setjið spagettíð út í og sjóðið samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
  5. Smakkið hakksósuna til á meðan spagettíð er að eldast og bætið við meira af kryddi eða salti ef þörf er á.
  6. Setjið soðið spagettí á disk, skellið ausu af hakksósunni ofan á og rífið parmesan yfir.
  7. Svo er bara að njóta!