Showing Posts From

20 mínútur

Próteinríkt Pastasalat

Próteinríkt Pastasalat

Hráefni1 pakki prótínpasta 300g frosinn kjúklingur (foreldaður) 1/2 gúrka 1 pakki kirsuberjatómatar 1/2 rauðlaukur 2 avókadó 1/2 bakki rifinn MexíkóosturSiracha-Jógúrtsósa3 kúfaðar msk grísk jógúrt 3 msk Sriracha sósa (eða eftir smekk) Safi úr 1/2 sítrónu 1 tsk hvítlauksduft 1 tsk þurkuð steinselja Salt og pipar (eftir smekk)AðferðSjóðið pastað í söltuðu vatni samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Hitið foreldaða kjúklinginn í airfryer eða í ofni þar til hann er orðinn heitur. Hrærið saman í skál: gríska jógúrt, Sriracha sósu, sítrónusafa, hvítlauksduft, steinselju, salt og pipar þar til sósan er mjúk og vel blönduð. Skerið niður gúrku, kirsuberjatómata, rauðlauk og avókadó. Setjið soðna pastað, hitaða kjúklinginn, skorna grænmetið og rifna Mexíkóostinn í stóra skál. Hellið sósunni yfir og blandið öllu saman Berið salatið fram strax eða geymið í ísskáp. Þetta salat er líka frábært daginn eftir! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Hakk og Spagetti

Hakk og Spagetti

Hráefni300gr spagettí 500gr nautahakk Salt og pipar Hvítlaukskrydd Laukkrydd Paprikukrydd 1 dós/krukka pastasósa (t.d. Tomato, Garlic & Onion frá Essential Everyday - eða bara það sem ykkur finnst best) Ferskur parmesanostur (rifinn yfir í lokin)AðferðHitið vatn í potti upp á suðu og saltið það vel. Hitið smá olíu á pönnu og steikið nautahakkið. Kryddið með salti, pipar, hvítlaukskryddi, laukkryddi og paprikukryddi. Hellið allri krukkunni af pastasósu út á pönnuna hjá hakkinu. Hrærið vel saman og látið sósuna malla á vægum hita. Þegar vatnið fer að sjóða, setjið spagettíð út í og sjóðið samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Smakkið hakksósuna til á meðan spagettíð er að eldast og bætið við meira af kryddi eða salti ef þörf er á. Setjið soðið spagettí á disk, skellið ausu af hakksósunni ofan á og rífið parmesan yfir. Svo er bara að njóta! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Kjúklingur og Pasta – Kvöldmatur á 20 Mínútum!

Kjúklingur og Pasta – Kvöldmatur á 20 Mínútum!

Hráefni4 kjúklingabringur (skornar í tvennt) Hvítlaukskryddblanda (t.d. "Hvítlaukskryddblanda Bezt á flest") 600 ml vatn 500 ml tómat passata 2 kjúklingateningar 1 pakki pasta (t.d. Rummo Maxima próteinpasta eða venjulegt pasta) Salt og pipar (eftir smekk)AðferðSkerið kjúklingabringurnar í tvennt og kryggið vel öðrum megin með hvítlaukskryddblöndunni. Hitið smá olíu á stórri pönnu, setjið kjúklinginn á pönnuna og kryggið hina hliðina líka. Steikið í stutta stund á hvorri hlið til að fá fallega steikingarhúð (ekki þarf að elda kjúklinginn alveg í gegn strax). Blandið saman í skál vatni, passata og kjúklingateningum. Hellið ósoðnu pastanu beint á pönnuna í kringum og yfir kjúklinginn. Hellið vökvablöndunni yfir allt á pönnunni þannig að pastað hyljist vel. Kryddið með smá salti og pipar. Skellið loki á pönnuna og látið suðuna koma upp. Látið allt malla á vægum/meðalhita undir loki í 12–15 mínútur, eða þar til pastað er orðið mjúkt. Berið fram rjúkandi heitt og njótið! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Rjómalagað Kjúklingapasta – Kvöldmatur á 20 Mínútum!

Rjómalagað Kjúklingapasta – Kvöldmatur á 20 Mínútum!

Hráefni3 kjúklingabringur 1 pakki pasta (t.d. prótínpasta eins og Rummo Maxima eða venjulegt pasta) 1/2 líter rjómi 2 msk rjómaostur 1 dl tómatsósa 1 tsk karrikrydd (Leynihráefnið!) Rotisserie Chicken krydd eða annað gott kjúklingakrydd Pipar og salt eftir smekkAðferðSjóðið pastað í vel söltuðu vatni samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Skerið kjúklingabringurnar í litla bita. Hitið olíu á stórri pönnu, setjið kjúklingabitana út á og kryddið vel með Rotisserie kjúklingakryddi. Steikið þar til kjúklingurinn er næstum því gegnumeldaður. Hellið rjómanum yfir kjúklinginn á pönnunni. Bætið rjómaostinum og tómatsósunni út í og hrærið vel saman. Bætið 1 tsk af karrikryddi út í sósuna ásamt smá pipar og salti. Karrið gefur sósunni dásamlega dýpt og fallegan lit án þess að gera hana sterka. Látið sósuna malla á meðan pastað klárast. Hellið soðnu pastanu beint út á pönnuna með kjúklingablöndunni. Blandið öllu vel saman svo sósan hjúpi pastað fullkomlega. Setjið á diska, stráið smá ferskri eða þurrkaðri steinselju yfir til að gera þetta extra ferskt og glæsilegt, og njótið rjúkandi heitt! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Kjúklinga Taco – Kvöldmatur á 20 Mínútum!

Kjúklinga Taco – Kvöldmatur á 20 Mínútum!

Hráefni16 litlar taco-tortillakökur 400 gr tilbúinn kjúklingur (eða afgangskjúklingur, smátt saxaður) 1/2 rauðlaukur (smátt saxaður) 1 dós sýrður rjómi 1 krukka salsa sósa 1 pakki fajitaskrydd 1 dl af rifnum osti + cla 2dl til að setja inní tacoiðAðferðSaxið kjúklinginn og rauðlaukinn smátt niður og setjið í skál. Bætið sýrðum rjóma, salsa sósu og taco-kryddi út í skálina ásamt 1 dl af rifnum osti. Hrærið öllu vel saman þar til komin er jöfn og bragðgóð kjúklingablanda. Raðið litlu taco-kökunum á borðið. Setjið eina góðaskeið (t.d. með ís- eða matskeið) af kjúklingablöndunni á annan helminginn á hverri köku og smyrjið aðeins úr henni. Stráið smá rifnum osti yfir fyllinguna. Brjótið hinn helminginn á kökunni yfir svo úr verði litlar "lokaðar" tacos. Raðið þeim þétt á ofnplötu klædda bökunarpappír (þessi uppskrift dugar í um 16 litlar kökur). Bakið í ofni við 180°C - 200°C í um það bil 10 mínútur þar til kökurnar eru orðnar stökkar og osturinn er bráðnaður. Raðið stökku kjúklinga-tacos á disk ásamt salati og sprautið ríflega af hvítlaukssósu yfir allt saman. Njótið! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)