Rjómalagað Kjúklingapasta – Kvöldmatur á 20 Mínútum!
- 17 Jul, 2026
Þegar það er mikið að gera á virkum dögum er dásamlegt að eiga uppskrift sem tekur einungis 20 mínútur að græja! Þetta kjúklingapasta er ofsalega einfalt og gott og alveg tilvalið að græja þegar við höfum ekki tíma (eða nennu) í að eyða of miklum tíma í eldhúsinu.
Hráefni
- 3 kjúklingabringur
- 1 pakki pasta (t.d. prótínpasta eins og Rummo Maxima eða venjulegt pasta)
- 1/2 líter rjómi
- 2 msk rjómaostur
- 1 dl tómatsósa
- 1 tsk karrikrydd (Leynihráefnið!)
- Rotisserie Chicken krydd eða annað gott kjúklingakrydd
- Pipar og salt eftir smekk
Aðferð
- Sjóðið pastað í vel söltuðu vatni samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Skerið kjúklingabringurnar í litla bita.
- Hitið olíu á stórri pönnu, setjið kjúklingabitana út á og kryddið vel með Rotisserie kjúklingakryddi. Steikið þar til kjúklingurinn er næstum því gegnumeldaður.
- Hellið rjómanum yfir kjúklinginn á pönnunni. Bætið rjómaostinum og tómatsósunni út í og hrærið vel saman.
- Bætið 1 tsk af karrikryddi út í sósuna ásamt smá pipar og salti. Karrið gefur sósunni dásamlega dýpt og fallegan lit án þess að gera hana sterka. Látið sósuna malla á meðan pastað klárast.
- Hellið soðnu pastanu beint út á pönnuna með kjúklingablöndunni. Blandið öllu vel saman svo sósan hjúpi pastað fullkomlega.
- Setjið á diska, stráið smá ferskri eða þurrkaðri steinselju yfir til að gera þetta extra ferskt og glæsilegt, og njótið rjúkandi heitt!