Kjúklinga Taco – Kvöldmatur á 20 Mínútum!

Kjúklinga Taco – Kvöldmatur á 20 Mínútum!

Þetta kjúklinga taco er stökkt að utan en mjúkt og djúsí að innan. Þessi réttur er algjör bjargvættur á virkum dögum og fullkomin leið til að nýta afgangskjúkling!

Hráefni

  • 16 litlar taco-tortillakökur
  • 400 gr tilbúinn kjúklingur (eða afgangskjúklingur, smátt saxaður)
  • 1/2 rauðlaukur (smátt saxaður)
  • 1 dós sýrður rjómi
  • 1 krukka salsa sósa
  • 1 pakki fajitaskrydd
  • 1 dl af rifnum osti + cla 2dl til að setja inní tacoið

Aðferð

  1. Saxið kjúklinginn og rauðlaukinn smátt niður og setjið í skál.
  2. Bætið sýrðum rjóma, salsa sósu og taco-kryddi út í skálina ásamt 1 dl af rifnum osti.
  3. Hrærið öllu vel saman þar til komin er jöfn og bragðgóð kjúklingablanda.
  4. Raðið litlu taco-kökunum á borðið.
  5. Setjið eina góðaskeið (t.d. með ís- eða matskeið) af kjúklingablöndunni á annan helminginn á hverri köku og smyrjið aðeins úr henni.
  6. Stráið smá rifnum osti yfir fyllinguna.
  7. Brjótið hinn helminginn á kökunni yfir svo úr verði litlar “lokaðar” tacos.
  8. Raðið þeim þétt á ofnplötu klædda bökunarpappír (þessi uppskrift dugar í um 16 litlar kökur).
  9. Bakið í ofni við 180°C - 200°C í um það bil 10 mínútur þar til kökurnar eru orðnar stökkar og osturinn er bráðnaður.
  10. Raðið stökku kjúklinga-tacos á disk ásamt salati og sprautið ríflega af hvítlaukssósu yfir allt saman. Njótið!