Kjúklinga Núðlur
- 09 Sep, 2026
Þessar kjúklinga núðlur eru algjör snilld þegar þig langar í fljótlegan, bragðmiklan og seðjandi en hefur ekki mikinn tíma!
Hráefni
- 3 kjúklingabringur
- 1 pakki (250g) núðlur
- 1 laukur
- 2 hvítlauksgeirar
- 1 tsk paprikuduft
- 1 tsk hvítlauksduft
- 1/2 tsk chiliflögur (má sleppa)
- 1 tsk salt
- 1/2 tsk pipar
- 2 tsk matarsódi (mýkir kjúklinginn!)
- 2 msk maíssterkja
Sósan
- 1 dl soyasósa
- 2 tsk hvítlauksduft
- 1/2 tsk chiliflögur (má sleppa)
- 2 msk hunang
- 1 dl vatn
- 2 msk sítrónusafi
- 2 tsk maíssterkja
Aðferð
1. Kjúklingurinn kryddaður
- Skerið kjúklingabringurnar í litla bita og setjið í skál.
- Bætið við paprikudufti, hvítlauksdufti, chiliflögum, salti, pipar, matarsóda og maíssterkju. Blandið öllu vel saman svo kryddið og sterkjan hjúpi kjúklinginn alveg.
- Pískaðu saman í skál: soyasósu, hvítlauksduft, chiliflögur, hunang, vatn, sítrónusafa og maíssterkju þar til allt leysist vel upp. Leggið til hliðar.
- Hitið olíu á pönnu og steikið kjúklinginn þar til hann er eldaður í gegn og kominn með fallega húð. Takið kjúklinginn af pönnunni og setjið á disk til hliðar.
- Mýkið laukinn og saxaða hvítlaukinn á sömu pönnu í dálítinn tíma. Hellið sósunni út á pönnuna og látið hana malla á meðalhita á meðan þið sjóðið núðlurnar.
- Sjóðið núðlurnar í potti samkvæmt leiðbeiningum á pakka og hellið svo vatninu af.
- Bætið núðlunum og kjúklingnum út á pönnuna og blandið saman við sósuna.