Kjúklingur og Pasta – Kvöldmatur á 20 Mínútum!
- 05 Aug, 2026
Hér er næsta uppskriftin í 20 mínútna seríunni minni! Þessi réttur er ofsalega einfaldur, tekur fá hráefni og það besta við hann - Allt er eldað í sömu pönnunni!
Hráefni
- 4 kjúklingabringur (skornar í tvennt)
- Hvítlaukskryddblanda (t.d. “Hvítlaukskryddblanda Bezt á flest”)
- 600 ml vatn
- 500 ml tómat passata
- 2 kjúklingateningar
- 1 pakki pasta (t.d. Rummo Maxima próteinpasta eða venjulegt pasta)
- Salt og pipar (eftir smekk)
Aðferð
- Skerið kjúklingabringurnar í tvennt og kryggið vel öðrum megin með hvítlaukskryddblöndunni.
- Hitið smá olíu á stórri pönnu, setjið kjúklinginn á pönnuna og kryggið hina hliðina líka.
- Steikið í stutta stund á hvorri hlið til að fá fallega steikingarhúð (ekki þarf að elda kjúklinginn alveg í gegn strax).
- Blandið saman í skál vatni, passata og kjúklingateningum.
- Hellið ósoðnu pastanu beint á pönnuna í kringum og yfir kjúklinginn.
- Hellið vökvablöndunni yfir allt á pönnunni þannig að pastað hyljist vel.
- Kryddið með smá salti og pipar.
- Skellið loki á pönnuna og látið suðuna koma upp.
- Látið allt malla á vægum/meðalhita undir loki í 12–15 mínútur, eða þar til pastað er orðið mjúkt.
- Berið fram rjúkandi heitt og njótið!