Próteinríkt Pastasalat
- 02 Sep, 2026
Þetta pastasalat tikkar í öll boxin! Hollt, einfalt, fljótlegt og að sjálfsögðu geggjað gott! Mæli líka með að nýta það í nesti þar sem það er alls ekki verra þó það sé orðið kalt!
Hráefni
- 1 pakki prótínpasta
- 300g frosinn kjúklingur (foreldaður)
- 1/2 gúrka
- 1 pakki kirsuberjatómatar
- 1/2 rauðlaukur
- 2 avókadó
- 1/2 bakki rifinn Mexíkóostur
Siracha-Jógúrtsósa
- 3 kúfaðar msk grísk jógúrt
- 3 msk Sriracha sósa (eða eftir smekk)
- Safi úr 1/2 sítrónu
- 1 tsk hvítlauksduft
- 1 tsk þurkuð steinselja
- Salt og pipar (eftir smekk)
Aðferð
- Sjóðið pastað í söltuðu vatni samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Hitið foreldaða kjúklinginn í airfryer eða í ofni þar til hann er orðinn heitur.
- Hrærið saman í skál: gríska jógúrt, Sriracha sósu, sítrónusafa, hvítlauksduft, steinselju, salt og pipar þar til sósan er mjúk og vel blönduð.
- Skerið niður gúrku, kirsuberjatómata, rauðlauk og avókadó.
- Setjið soðna pastað, hitaða kjúklinginn, skorna grænmetið og rifna Mexíkóostinn í stóra skál. Hellið sósunni yfir og blandið öllu saman
- Berið salatið fram strax eða geymið í ísskáp. Þetta salat er líka frábært daginn eftir!