Sesar Vefja

Sesar Vefja

Hráefni1 stór kjúklingabringur Rotisserie Chicken krydd (t.d. frá McCormick) 1 haus kínakál ca. 1 dl nýrifinn parmesanostur 1/2 stöng gúrka 1/2 poki brauðteningar Sesar dressing Smá salt Safi úr 1/2 sítrónu TortillakökurAðferðSkerið stóra kjúklingabringu í tvennt eftir endilöngu til að fá tvo þunn stykki.Kryddið vel beggja vegna með Rotisserie Chicken kryddi.Steikið á pönnu við meðalhita þar til kjúklingurinn er í gegnumeldaður og kominn með fallega gyllta húð.Takið kjúklinginn af pönnunni, látið hvíla í stutta stund og skerið svo í litla bita/teninga.Saxið kínakálið mjög smátt og setjið í stóra skál.Rífið um 1 dl af ferskum parmesanosti út í skálina.Bætið við söxuðum gúrkubitum, brauðteningum og söxuðum kjúklingnum.Hellið Sesar dressingunni yfir allt saman (magn eftir smekk).Smakkið til með smá salti og kreistið ferskan sítrónusafa yfir í lokin – þetta gerir gæfumuninn!Blandið öllu vel og rækilega saman.Sestjið vel af sesarsalatinu í miðjuna á tortillaköku.Bróttið hliðarnar inn og rúllið vefjunni þétt upp.Hitið þurra pönnu og ristið vefjuna í um 1–2 mínútur á hvorri hlið (eða þar til hún er orðin brúnleit og stökk að utan).Skerið vefjuna í tvennt og berið fram rjúkandi ferska. Njótið! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Kjúklinga fajitas

Kjúklinga fajitas

Kjúklingur & Grænmeti3 kjúklingabringur 2 laukar 2 rauðar paprikur 3 hvítlauksgeirar 3 msk olía 1 pakki fajitas kryddSkerið lauk og papriku í strimla og setjið í skál. Pressið hvítlauksgeirana út í skálina. Skerið kjúklingabringurnar í strimla og bætið þeim við. Hellið olíunni yfir, stráið fajitas kryddinu og blandið öllu vel saman. Setjið blönduna í eldfast mót og bakið í ofni við 180°C í 25 mínútur.Guacamole2 avókadó 1 hvítlauksgeiri Safi úr hálfri sítrónu Salt eftir smekkStappið avókadóið vel með gaffli og setjið í skál. Pressið hvítlauksgeira út í og kreistið sítrónusafann yfir. Kryddið með smá salti og hrærið vel saman.Chili-Mæjó2 dl mæjónes 1 msk sriracha sósa 1/2 dl sweet chili sósa 1 tsk hvítlauksduft Safi úr hálfri sítrónu Salt eftir smekkSetjið majónes, sriracha og sweet chili sósu í skál. Bætið hvítlauksdufti, sítrónusafa og smá salti út í. Blandið öllu vel saman þar til sósan er slétt.Samsetning Hitið tortillakökur, smyrjið guacamole í botninn, setjið vel af kjúklingi og grænmeti ofan á, og toppið svo með chili-majó sósunni. Njótið! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Dásamlega Mjúkir Kleinuhringir

Dásamlega Mjúkir Kleinuhringir

Hráefni480g volg mjólk 14g þurrger 100g sykur 4 egg 2 tsk vanilludropar 2 tsk salt 800g hveiti (mælt er með brauðhveiti) 170g mjúkt smjörSteiking1 líter olíaGljái500g flórsykur 1 tsk vanilludropar 5–8 msk mjólk (löguð til eftir smekk)AðferðBlandaðu saman volgri mjólk, þurrgeri og sykri í hrærivélarskál. Láttu standa í 5–10 mínútur þar til blandan fer að freiða. Bættu eggjum, vanilludropum, salti og hveiti út í skálina. Hrærðu deigið með deigkróknum þar til allt hefur samlagast. Bættu svo mjúka smjörinu við í litlum skömtum og hrærðu vel á milli. Hnoðaðu deigið á meðalhraða í hrærivélinni í 8–10 mínútur eða þar til það er orðið silkimjúkt, teygjanlegt og farið að losna frá hliðunum á skálinni. Smyrðu stóra skál léttilega með olíu, færðu deigið yfir í hana og hylðu með klút. Láttu deigið hefast í skjóli í um 80 mínútur (eða þar til það hefur tvöfaldast að stærð). Stráðu vel af hveiti á borðið og helltu deiginu úr skálinni. Þrýstu létt á deigið og teygðu úr því með höndunum (passaðu að hafa það ekki of þunnt). Skerðu út kleinuhringi með kleinuhringjaskera (eða mótum/glasi). Færðu hringina varlega yfir á plötu klædda bökunarpappír og láttu þá bíða á meðan olían er hituð. Hitaðu Isio4 olíuna í potti eða djúpri pönnu upp í 170°C (gott er að nota mæli til að fylgjast vel með hitanum). Stektu kleinuhringina í 40–50 sekúndur á hvorri hlið þar til þeir eru fallegir og gylltir. Færðu þá yfir á bökunargrind og láttu þá kólna aðeins. Pískaðu saman flórsykri, vanilludropum og 5 msk af mjólk í skál. Bættu við meiri mjólk (matskeið í einu) þar til gljáinn er frekar þunnur en hylur hringina vel. Dýfðu hverjum kleinuhring vel í gljáann og leggðu á bakka eða grind til að gljáinn setjist. Berið fram nýgerða og njótið hvers einasta bita! Þessir eru ómótstæðilegir með kaffibolla eða ískaldri mjólk. View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Ofnbökuð kjúklingalæri og kartöflur

Ofnbökuð kjúklingalæri og kartöflur

HráefniKjúklingalæri (ca. 6-8 stk úr einum pakka) 10 kartöflur 1 lítill brokkolíhaus 2msk Olía (til að velta kartöflum og kjúklingi upp úr) Hvítlaukskrydd, paprika, pipar og salt Smá chili flögur (chili flakes) Rotisserie chicken krydd (t.d. frá McCormick)Skerið kartöflurnar í litla bita og setjið þær í eldfast mót. Hellið um það bil 2 matskeiðum af olíu yfir og kryddið vel með hvítlaukskryddi, papriku, pipar, salti og smá chili flögum. Blandið þessu vel saman. Skerið brokkolíið í litla bita, dreifið yfir kartöflurnar og blandið saman. Setjið kjúklingalærin í sér skál, hellið smá olíu yfir og kryddið vel með Rotisserie chicken kryddi (eða öðru góðu kjúklingakryddi). Blandið vel. Raðið krydduðu kjúklingalærunum ofan á kartöflu- og brokkolíblönduna. Setjið fatið inn í ofn á 180°C í um það bil 30 mínútur.Berið réttinn fram beint úr fatinu ásamt ferska salatinu. Það er líka einstaklega gott að dreyfa smá hvítlaukssósu yfir allt saman áður en þú borðar! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Allra besta súkkulaðikakan

Allra besta súkkulaðikakan

Ég ætla leyfa mér að fullyrða að þetta sé besta súkkulaðikakan! Ég hef notað þessa uppskrift í mörg ár og eyddi smá tíma í að fínpússa hana þar til hún varð nákvæmlega eins og ég vildi hafa hana. Hún er mjúk, rík af súkkulaðibragði og ótrúlega fjölhæf. Og eitt af því mikilvægasta: hún er rosalega einföld. Þú getur bókstaflega sett hana í ofninn á um það bil 5 mínútum – ég er ekki að ýkja! Ég nota hana í alls konar kökur, hvort sem það er einföld skúffukaka með glassúr eða fallega skreytt kaka með smjörkremi. Hún hentar í allt. Ég mæli hiklaust með að þú prófir hana. Uppskrift (ATH 1 bolli = 2.3dl)2 bollar hveiti 2 bollar sykur 3/4 bollar kakó 2tsk matarsódi 1tsk salt 2 egg 1 bolli súrmjólk 1 bolli olía 1 bolli heitt vatn úr krananum 2tsk vanilludroparÉg byrja á því að blanda þurrefnunum saman, bæti svo restinni af hráefnunum og hrærum velSmyr svo skúffukökuform með olíu og helli deginu í formiðÉg baka svo kökuna á 175 gráðum í 25-30 min View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Snickers kaka

Snickers kaka

Súkkulaðibotnar (ATH: 1 bolli = 2,3 dl)2 bollar hveiti 2 bollar sykur 3/4 bolli kakó 2 tsk matarsódi 1 tsk salt 1 bolli súrmjólk 1 bolli olía 1 bolli heitt vatn úr krananum 2 tsk vanilludroparBlandið öllum þurrefnunum vel saman í skál og blandið saman. Bætið restinni af hráefnunum út í og hrærið vel saman þar til deigið er slétt. Skiptið deiginu jafnt í tvö form (ca. 2 x 25 cm) sem hafa verið klædd bökunarpappír. Bakið við 175°C í 25-30 mínútur. Látið botnana kólna alveg.Heimalöguð Hnetukaramella300g sykur 150g smjör (við stofuhita, skorið í bita) 180ml rjómi 1/2 tsk salt 200g salthneturHitið rjómann upp að suðu í litlum potti og takið af hitanum (mikilvægt svo hann sé heitur þegar hann fer út í sykurinn). Setjið helminginn af sykrinum á pönnu á meðalháan hita og bræðið hann niður. Bætið svo hinum helmingnum við og leyfið öllu að bráðna í gullna karamellu. Takið pönnuna af hitanum og hrærið smjörinu saman við þar til það er bráðnað. Hellið heita rjómanum varlega út í (gætið ykkur, það sýður mikið upp) og blandið vel saman. Setjið saltið út í lokin. Takið 1/3 af karamellunni frá og setjið í sér skál (fyrir toppinn). Restinni (2/3) blandið þið saman við salthneturnar í annarri skál og leyfið báðum blöndum að kólna.Súkkulaðikrem225g smjör 150g suðusúkkulaði 150g rjómasúkkulaði 120g flórsykur 25g kakó 1/2 tsk saltSetjið öll hráefnin saman í pott og bræðið yfir meðalhita þar til allt hefur runnið saman í slétt og gljáandi krem. Hellið kreminu í skál (eða eldfast mót til að flýta fyrir) og geymið í ísskáp í 2-3 klukkustundir svo það stífni og verði smurhæft.SamsetningSetjið neðri botninn á kökudisk. Smyrjið þunnu lagi af súkkulaðikreminu ofan á. Setjið hluta af súkkulaðikreminu í sprautupoka. Sprautið hring með fram jaðrinum á botninum til að búa til „vegg“ sem heldur hnetukaramellunni inni. Hellið salthnetu-karamellublöndunni á mitt kremið og jafnið út. Setjið seinni kökubotninn ofan á. Smyrjið restinni af súkkulaðikreminu jafnt utan um alla kökuna og ofan á hana. Setjið karamelluna (sem var tekin frá) í sprautupoka. Sprautið henni í hringi ofan á kökuna, sléttið aðeins úr henni með spaða og búið til fallegt snúningsmynstur í miðjunni með endanum á spaðanum á meðan þú snýrð diskinum. Skerið Snickers í litla bita og raðið þeim fallega meðfram kanti kökunnar.Berið fram og njótið með góðum kaffibolla eða ískaldri mjólk! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Súrsætur Kjúklingur

Súrsætur Kjúklingur

Hráefni4 kjúklingabringur Hvítlaukskrydd, chili flögur, paprika, pipar og salt (eftir smekk) 1 tsk matarsódi 3 tsk maíssterkja (cornstarch) 1 eggSúrsæta Sósan1 dl tómatsósa 4 tsk Soyasósa 3 tsk hvítvínsedik 1 msk púðursykur Safi úr 1 dós af ananasGrænmeti & Meðlæti1 dós ananasbitar (ávextirnir sjálfir) 1-2 paprikur (skornar í grófa bita) 1 laukur (skorinn í grófa bita) Olía til steikingar Soðin hrísgrjónAðferðSkerið kjúklingabringurnar í hæfilega litla bita og setjið í skál.Bætið við hvítlaukskryddi, chili flögum, papriku, pipar og salti.Bætið matarsóda, maíssterkju og 1 eggi út í skálina og hrærið öllu vel saman. Látið standa á meðan sósan og grænmetið er græjað.Setjið tómatsósu, szójasósu, hvítvínsedik, púðursykur og ananassafann úr dósinni í skál.Hrærið vel saman þar til sykurinn leysist upp og leggið til hliðar.Hitið smá olíu á pönnu og steikið kjúklingabitana þar til þeir eru eldðir í gegnum og komnir með fallega húð. Takið kjúklinginn af pönnunni og setjið í skál til hliðar.Mýkið lauk, papriku og ananasbita á sömu pönnu í dálítinn tíma.Hellið súrsætu sósunni yfir grænmetið á pönnunni og látið hana malla og þykkna í nokkrar mínútur.Bætið steikta kjúklingnum aftur út á pönnuna og látið öll hráefnin malla saman í 2–3 mínútur til viðbótar svo bragðið blandist vel.Berið rjúkandi heitan súrsæta kjúklinginn fram yfir nýsoðnum hrísgrjónum og njótið!

Prótein Calzone

Prótein Calzone

Próteindeig200g grísk jógúrt 250g hveiti 1 tsk lyftiduft 1 tsk óreganóFylling Hér getur þú leikið þér með það sem þér finnst best, en í myndbandinu var notuð þessi klassíska blanda:Pítsasósa Skinka (skorin í sneiðar) Rifinn osgur Pítsakrydd Smá chili flögur (chili flakes)AðferðSetjið gríska jógúrt, hveiti, lyftiduft og óreganó saman í skál. Blandið öllu vel saman og hnoðið svo aðeins með höndunum þar til það myndar jafnt og meðfærilegt deig. Skiptið deiginu í tvennt. Fletjið hvorn hluta út með kökukefli í flata, kringlótta pítsubotna á hveitistráðu borði. Smyrjið pítsasósu á annan helminginn af hverjum botni. Raðið skinku og pepperóní ofan á sósuna. Stráið vel af rifnum osti yfir. Kryddið með pítsakryddi og smá chili flögum. Brjótið tóma helminginn á deiginu yfir fyllinguna. Smellið brúnunum vel saman og rullið þeim upp eða klemmið saman með fingrunum þannig að fyllingin leki örugglega ekki út í ofninum. Raðið kökunum í eldfast mót eða á ofnplötu. Bakið í ofni við 180°C í 20 mínútur þar til deigið er fallega gyllt.

Ofnbökuð risa tortilla með hakki

Ofnbökuð risa tortilla með hakki

Hráefni12 tortilla kökur (stórar) 1 pakki nautahakk 1 laukur 1 pakki Taco kryddblanda 1 dós salsa sósa 1 dós maískorn 1 kúfuð msk rjómaostur Smá salt Pasta Rossa krydd (eða annað gott krydd eftir smekk) 1 Rauðlaukur Rifinn ostur Olía (til að smyrja ofnplötuna)Skerið lauk smátt niður og steikið á pönnu þar til hann mýkist. Bætið nautahakkinu út á pönnuna og steikið þar til það er full eldað. Skellið taco-kryddinu og heilli dós af salsa sósu saman við. Bætið við rjómaosti og einni dós af maísbaunum. Hrærið öllu vel saman. Kryddið til með smá salti og Pasta Rossa kryddi eftir smekk til að fínstilla bragðið. Slökkvið svo undir pönnunni.SamsetningSmyrjið ofnplötu vel með olíu. Raðið tortilla kökunum í hring á plötuna þannig að þær hylji botninn en hangi vel út af hliðunum, ásamt einni köku á miðjunni. Hellið hakkblöndunni beint ofan á og dreifið jafnt úr henni. Stráið smátt söxuðum rauðlauk og rifnum osti yfir allt saman. Setjið eina tortilla köku yfir miðjuna og brjótið brúnirnar á hinum kökunum inn á við til að loka réttinum alveg. Setjið aðra ofnplötu ofan á réttinn sem farg svo hún bakist jafnt og haldi forminu. Bakið í ofni við 200°C í um það bil 15 mínútur.Skerið risa tortilluna niður í bita. Toppið hvern bita með:Skeið af sýrðum rjóma Salsa sósu Smátt söxuðum ferskum rauðlaukGjörið svo vel, dásamlega einfaldur og djúsí taco-réttur! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)

Hættulega einföld kanilkaka

Hættulega einföld kanilkaka

Byrjaðu á því að græja fyllinguna Hráefni150g púðursykur 2 tsk kanill 120g bráðið smjörSetjið púðursykur og kanil saman í skál. Hellið bráðnu smjöri út í og hrærið vel saman. Leggið til hliðar.Kökudeigið360g hveiti 200g sykur 4 tsk lyftiduft 300ml mjólk 1 tsk vanilludropar 2 egg 110g bráðið smjörSetjið hveiti, sykur og lyftiduft saman í skál og hrærið lauslega saman með píski. Hellið mjólk og vanilludropum út í skálina, brjótið eggin saman við og byrjið að píska. Bætið bráðnu smjöri út í deigið á meðan þið pískið og hrærið þar til deigið er kekkjalaust og slétt. Setjið bökunarpappír í skúffukökuform (eða viðeigandi bökunarform). Hellið deiginu í formið og sléttið vel úr því með sleikju. Dreifið kanil- og púðursykursblöndunni jafnt yfir deigið með skeið. Notið svo hníf til að gera hringi eða mynstur í deigið þannig að sósan blandist örlítið saman við kökuna án þess þó að renna alveg inn í hana. Bakið í ofni við 160°C. Ef þú ert með frekar þunnt skúffukökuform (eins og í myndbandinu) tekur þetta um 20 mínútur, en gott er að fylgjast vel með kökunni þar sem bökunartími getur verið mismunandi eftir formum.Látið kökuna kólna lítið eitt, skerið í hæfilega bita og njótið! Hún er dásamleg ein og sér eða með ískaldri mjólk eða góðum kaffibolla.

Ofnbökuð risa tortilla með kjúklingi

Ofnbökuð risa tortilla með kjúklingi

12 tortilla kökur (stórar) 1 pakki tilbúinn kjúklingur (t.d. rifinn eða smátt skorinn) 1 rauðlaukur 1 dós maískorn 1/2 pakki rifinn ostur 1 dós Sýrður rjómi 1 krukka Salsa sósa 1 pakki fajitas kryddblanda Smjör (til að smyrja ofnplötuna)Skerið kjúklinginn smátt niður ef þarf og setjið í stóra skál. Saxið rauðlaukinn niður og bætið út í skálina ásamt maískornum. Setjið rifna ostinn, sýrða rjómann og salsa sósuna saman við og hrærið lauslega. Bætið fajitas kryddinu út í blönduna og hrærið öllu vel saman. Smyrjið ofnplötu vel með smjöri. Raðið tortilla kökunum á plötuna þannig að þær hylji botninn og hliðarnar, en látið þær hanga aðeins út af brúnunum (notaðar eru um 10-11 kökur í þetta skref). Hellið kjúklingablöndunni yfir kökurnar og dreifið jafnt úr henni með skeið. Setjið 1-2 tortilla kökur beint á miðjuna, ofan á fyllinguna. Brjótið brúnirnar á neðri kökunum inn á við til að loka réttinum alveg. Penslið eða smyrjið efsta lagið á kökunum léttilega með smjöri. Setjið aðra ofnplötu ofan á réttinn til að halda kökunum vel lokuðum og flötum á meðan þær bakast. Bakið í ofni við 200°C í 20 mínútur. Takið efri ofnplötuna af og skerið risa tortilluna niður í hæfilega bita (t.d. með pítsuskera).Berið fram með því meðlæti sem þið viljið, ég notaði:Sýrðan rjóma Salsa sósu Smátt saxaðan rauðlauk View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)