Hollari Beyglur úr Grískri Jógúrt
Hráefni4,5 dl grísk jógúrt 4,5 dl hveiti (t.d. Körnax hvítu eða bláu pokarnir) 2 tsk lyftiduft 1 tsk salt 1 egg (slegið saman til að pensla) Valmöguleiki 1: ca. 6–10 jalapeño bita (smátt saxaðir) + 1 dl rifinn cheddarostur Valmöguleiki 2: Everything Bagel kryddblanda (t.d. frá McCormick)AðferðSetjið gríska jógúrt, hveiti, lyftiduft og salt í stóra skál. Hrærið öllu lauslega saman með sleikju og hellið svo deiginu á hveitistráð borð. Hnoðið deigið mjúklega í höndunum í nokkrar mínútur þar til það kemur saman í slétta og fína kúlu.Ef þú vilt gera beiglur með jalapeño og cheddar: Stráið söxuðum jalapeño og hluta af cheddarostinum yfir deigið og hnoðið varlega saman.Skiptið deiginu í 8 hluta. Mótið hvern hluta í kúlu og stingið fingri í gegnum miðjuna til að búa til beyglugat. Togið og snúið deiginu léttilega til að stækka gatið. Raðið beyglunum á ofnplötu klædda bökunarpappír. Penslið allar beyglurnar vel með slegnu eggi. Jalapeño-beyglurnar: Raðið auka jalapeño-sneiðum á toppinn og stráið vel af rifnum cheddarost yfir. Everything Bagel-beyglurnar: Stráið ríflega af Everything Bagel kryddi yfir. Bakið í ofni við 170°C í um það bil 20–25 mínútur, eða þar til þær eru orðnar fallega gylltar. Látið beyglurnar kólna aðeins á grind. Skerið í tvennt, smyrjið með rjómaosti eða uppáhalds álegginu þínu og njótið! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)
- 11 Jun, 2026
Kjúklinga fajitas
Kjúklingur & Grænmeti3 kjúklingabringur 2 laukar 2 rauðar paprikur 3 hvítlauksgeirar 3 msk olía 1 pakki fajitas kryddSkerið lauk og papriku í strimla og setjið í skál. Pressið hvítlauksgeirana út í skálina. Skerið kjúklingabringurnar í strimla og bætið þeim við. Hellið olíunni yfir, stráið fajitas kryddinu og blandið öllu vel saman. Setjið blönduna í eldfast mót og bakið í ofni við 180°C í 25 mínútur.Guacamole2 avókadó 1 hvítlauksgeiri Safi úr hálfri sítrónu Salt eftir smekkStappið avókadóið vel með gaffli og setjið í skál. Pressið hvítlauksgeira út í og kreistið sítrónusafann yfir. Kryddið með smá salti og hrærið vel saman.Chili-Mæjó2 dl mæjónes 1 msk sriracha sósa 1/2 dl sweet chili sósa 1 tsk hvítlauksduft Safi úr hálfri sítrónu Salt eftir smekkSetjið majónes, sriracha og sweet chili sósu í skál. Bætið hvítlauksdufti, sítrónusafa og smá salti út í. Blandið öllu vel saman þar til sósan er slétt.Samsetning Hitið tortillakökur, smyrjið guacamole í botninn, setjið vel af kjúklingi og grænmeti ofan á, og toppið svo með chili-majó sósunni. Njótið! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)
- 07 Jun, 2026
Ofnbökuð kjúklingalæri og kartöflur
HráefniKjúklingalæri (ca. 6-8 stk úr einum pakka) 10 kartöflur 1 lítill brokkolíhaus 2msk Olía (til að velta kartöflum og kjúklingi upp úr) Hvítlaukskrydd, paprika, pipar og salt Smá chili flögur (chili flakes) Rotisserie chicken krydd (t.d. frá McCormick)Skerið kartöflurnar í litla bita og setjið þær í eldfast mót. Hellið um það bil 2 matskeiðum af olíu yfir og kryggið vel með hvítlaukskryddi, papriku, pipar, salti og smá chili flögum. Blandið þessu vel saman. Skerið brokkolíið í litla bita, dreifið yfir kartöflurnar og blandið saman. Setjið kjúklingalærin í sér skál, hellið smá olíu yfir og kryddið vel með Rotisserie chicken kryddi (eða öðru góðu kjúklingakryddi). Blandið vel. Raðið krydduðu kjúklingalærunum ofan á kartöflu- og brokkolíblönduna. Setjið fatið inn í ofn á 180°C í um það bil 30 mínútur.Berið réttinn fram beint úr fatinu ásamt ferska salatinu. Það er líka einstaklega gott að dreyfa smá hvítlaukssósu yfir allt saman áður en þú borðar! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)
Allra besta súkkulaðikakan
Ég ætla leyfa mér að fullyrða að þetta sé besta súkkulaðikakan! Ég hef notað þessa uppskrift í mörg ár og eyddi smá tíma í að fínpússa hana þar til hún varð nákvæmlega eins og ég vildi hafa hana. Hún er mjúk, rík af súkkulaðibragði og ótrúlega fjölhæf. Og eitt af því mikilvægasta: hún er rosalega einföld. Þú getur bókstaflega sett hana í ofninn á um það bil 5 mínútum – ég er ekki að ýkja! Ég nota hana í alls konar kökur, hvort sem það er einföld skúffukaka með glassúr eða fallega skreytt kaka með smjörkremi. Hún hentar í allt. Ég mæli hiklaust með að þú prófir hana. Uppskrift (ATH 1 bolli = 2.3dl)2 bollar hveiti 2 bollar sykur 3/4 bollar kakó 2tsk matarsódi 1tsk salt 1 bolli súrmjólk 1 bolli olía 1 bolli heitt vatn úr krananum 2tsk vanilludroparÉg byrja á því að blanda þurrefnunum saman, bæti svo restinni af hráefnunum og hrærum velSmyr svo skúffukökuform með olíu og helli deginu í formiðÉg baka svo kökuna á 175 gráðum í 25-30 min View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)
Snickers kaka
Súkkulaðibotnar (ATH: 1 bolli = 2,3 dl)2 bollar hveiti 2 bollar sykur 3/4 bolli kakó 2 tsk matarsódi 1 tsk salt 1 bolli súrmjólk 1 bolli olía 1 bolli heitt vatn úr krananum 2 tsk vanilludroparBlandið öllum þurrefnunum vel saman í skál og blandið saman. Bætið restinni af hráefnunum út í og hrærið vel saman þar til deigið er slétt. Skiptið deiginu jafnt í tvö form (ca. 2 x 25 cm) sem hafa verið klædd bökunarpappír. Bakið við 175°C í 25-30 mínútur. Látið botnana kólna alveg.Heimalöguð Hnetukaramella300g sykur 150g smjör (við stofuhita, skorið í bita) 180ml rjómi 1/2 tsk salt 200g salthneturHitið rjómann upp að suðu í litlum potti og takið af hitanum (mikilvægt svo hann sé heitur þegar hann fer út í sykurinn). Setjið helminginn af sykrinum á pönnu á meðalháan hita og bræðið hann niður. Bætið svo hinum helmingnum við og leyfið öllu að bráðna í gullna karamellu. Takið pönnuna af hitanum og hrærið smjörinu saman við þar til það er bráðnað. Hellið heita rjómanum varlega út í (gætið ykkur, það sýður mikið upp) og blandið vel saman. Setjið saltið út í lokin. Takið 1/3 af karamellunni frá og setjið í sér skál (fyrir toppinn). Restinni (2/3) blandið þið saman við salthneturnar í annarri skál og leyfið báðum blöndum að kólna.Súkkulaðikrem225g smjör 150g suðusúkkulaði 150g rjómasúkkulaði 120g flórsykur 25g kakó 1/2 tsk saltSetjið öll hráefnin saman í pott og bræðið yfir meðalhita þar til allt hefur runnið saman í slétt og gljáandi krem. Hellið kreminu í skál (eða eldfast mót til að flýta fyrir) og geymið í ísskáp í 2-3 klukkustundir svo það stífni og verði smurhæft.SamsetningSetjið neðri botninn á kökudisk. Smyrjið þunnu lagi af súkkulaðikreminu ofan á. Setjið hluta af súkkulaðikreminu í sprautupoka. Sprautið hring með fram jaðrinum á botninum til að búa til „vegg“ sem heldur hnetukaramellunni inni. Hellið salthnetu-karamellublöndunni á mitt kremið og jafnið út. Setjið seinni kökubotninn ofan á. Smyrjið restinni af súkkulaðikreminu jafnt utan um alla kökuna og ofan á hana. Setjið karamelluna (sem var tekin frá) í sprautupoka. Sprautið henni í hringi ofan á kökuna, sléttið aðeins úr henni með spaða og búið til fallegt snúningsmynstur í miðjunni með endanum á spaðanum á meðan þú snýrð diskinum. Skerið Snickers í litla bita og raðið þeim fallega meðfram kanti kökunnar.Berið fram og njótið með góðum kaffibolla eða ískaldri mjólk! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)
- 10 Mar, 2026
Prótein Calzone
Próteindeig200g grísk jógúrt 250g hveiti 1 tsk lyftiduft 1 tsk óreganóFylling Hér getur þú leikið þér með það sem þér finnst best, en í myndbandinu var notuð þessi klassíska blanda:Pítsasósa Skinka (skorin í sneiðar) Rifinn osgur Pítsakrydd Smá chili flögur (chili flakes)AðferðSetjið gríska jógúrt, hveiti, lyftiduft og óreganó saman í skál. Blandið öllu vel saman og hnoðið svo aðeins með höndunum þar til það myndar jafnt og meðfærilegt deig. Skiptið deiginu í tvennt. Fletjið hvorn hluta út með kökukefli í flata, kringlótta pítsubotna á hveitistráðu borði. Smyrjið pítsasósu á annan helminginn af hverjum botni. Raðið skinku og pepperóní ofan á sósuna. Stráið vel af rifnum osti yfir. Kryddið með pítsakryddi og smá chili flögum. Brjótið tóma helminginn á deiginu yfir fyllinguna. Smellið brúnunum vel saman og rullið þeim upp eða klemmið saman með fingrunum þannig að fyllingin leki örugglega ekki út í ofninum. Raðið kökunum í eldfast mót eða á ofnplötu. Bakið í ofni við 180°C í 20 mínútur þar til deigið er fallega gyllt.
- 02 Mar, 2026
Ofnbökuð risa tortilla með hakki
Hráefni12 tortilla kökur (stórar) 1 pakki nautahakk 1 laukur 1 pakki Taco kryddblanda 1 dós salsa sósa 1 dós maískorn 1 kúfuð msk rjómaostur Smá salt Pasta Rossa krydd (eða annað gott krydd eftir smekk) 1 Rauðlaukur Rifinn ostur Olía (til að smyrja ofnplötuna)Skerið lauk smátt niður og steikið á pönnu þar til hann mýkist. Bætið nautahakkinu út á pönnuna og steikið þar til það er full eldað. Skellið taco-kryddinu og heilli dós af salsa sósu saman við. Bætið við rjómaosti og einni dós af maísbaunum. Hrærið öllu vel saman. Kryddið til með smá salti og Pasta Rossa kryddi eftir smekk til að fínstilla bragðið. Slökkvið svo undir pönnunni.SamsetningSmyrjið ofnplötu vel með olíu. Raðið tortilla kökunum í hring á plötuna þannig að þær hylji botninn en hangi vel út af hliðunum, ásamt einni köku á miðjunni. Hellið hakkblöndunni beint ofan á og dreifið jafnt úr henni. Stráið smátt söxuðum rauðlauk og rifnum osti yfir allt saman. Setjið eina tortilla köku yfir miðjuna og brjótið brúnirnar á hinum kökunum inn á við til að loka réttinum alveg. Setjið aðra ofnplötu ofan á réttinn sem farg svo hún bakist jafnt og haldi forminu. Bakið í ofni við 200°C í um það bil 15 mínútur.Skerið risa tortilluna niður í bita. Toppið hvern bita með:Skeið af sýrðum rjóma Salsa sósu Smátt söxuðum ferskum rauðlaukGjörið svo vel, dásamlega einfaldur og djúsí taco-réttur! View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)
Hættulega einföld kanilkaka
Byrjaðu á því að græja fyllinguna Hráefni150g púðursykur 2 tsk kanill 120g bráðið smjörSetjið púðursykur og kanil saman í skál. Hellið bráðnu smjöri út í og hrærið vel saman. Leggið til hliðar.Kökudeigið360g hveiti 200g sykur 4 tsk lyftiduft 300ml mjólk 1 tsk vanilludropar 2 egg 110g bráðið smjörSetjið hveiti, sykur og lyftiduft saman í skál og hrærið lauslega saman með píski. Hellið mjólk og vanilludropum út í skálina, brjótið eggin saman við og byrjið að píska. Bætið bráðnu smjöri út í deigið á meðan þið pískið og hrærið þar til deigið er kekkjalaust og slétt. Setjið bökunarpappír í skúffukökuform (eða viðeigandi bökunarform). Hellið deiginu í formið og sléttið vel úr því með sleikju. Dreifið kanil- og púðursykursblöndunni jafnt yfir deigið með skeið. Notið svo hníf til að gera hringi eða mynstur í deigið þannig að sósan blandist örlítið saman við kökuna án þess þó að renna alveg inn í hana. Bakið í ofni við 160°C. Ef þú ert með frekar þunnt skúffukökuform (eins og í myndbandinu) tekur þetta um 20 mínútur, en gott er að fylgjast vel með kökunni þar sem bökunartími getur verið mismunandi eftir formum.Látið kökuna kólna lítið eitt, skerið í hæfilega bita og njótið! Hún er dásamleg ein og sér eða með ískaldri mjólk eða góðum kaffibolla.
- 28 Nov, 2025
Ofnbökuð risa tortilla með kjúklingi
12 tortilla kökur (stórar) 1 pakki tilbúinn kjúklingur (t.d. rifinn eða smátt skorinn) 1 rauðlaukur 1 dós maískorn 1/2 pakki rifinn ostur 1 dós Sýrður rjómi 1 krukka Salsa sósa 1 pakki fajitas kryddblanda Smjör (til að smyrja ofnplötuna)Skerið kjúklinginn smátt niður ef þarf og setjið í stóra skál. Saxið rauðlaukinn niður og bætið út í skálina ásamt maískornum. Setjið rifna ostinn, sýrða rjómann og salsa sósuna saman við og hrærið lauslega. Bætið fajitas kryddinu út í blönduna og hrærið öllu vel saman. Smyrjið ofnplötu vel með smjöri. Raðið tortilla kökunum á plötuna þannig að þær hylji botninn og hliðarnar, en látið þær hanga aðeins út af brúnunum (notaðar eru um 10-11 kökur í þetta skref). Hellið kjúklingablöndunni yfir kökurnar og dreifið jafnt úr henni með skeið. Setjið 1-2 tortilla kökur beint á miðjuna, ofan á fyllinguna. Brjótið brúnirnar á neðri kökunum inn á við til að loka réttinum alveg. Penslið eða smyrjið efsta lagið á kökunum léttilega með smjöri. Setjið aðra ofnplötu ofan á réttinn til að halda kökunum vel lokuðum og flötum á meðan þær bakast. Bakið í ofni við 200°C í 20 mínútur. Takið efri ofnplötuna af og skerið risa tortilluna niður í hæfilega bita (t.d. með pítsuskera).Berið fram með því meðlæti sem þið viljið, ég notaði:Sýrðan rjóma Salsa sósu Smátt saxaðan rauðlauk View this post on Instagram A post shared by Kolbrún Gunnarsdóttir (@kollagunn)